Lestrartími: 7 mínútur
Jæja, þá erum við aftur komin á þennan stað. Í enn eitt skiptið er þingið að fara að ræða um bókun 35 og í enn eitt skiptið verður sett á fót leiksýning um að þetta formsatriði og réttindamál fyrir íslensk heimili og fyrirtæki sé eitthvað annað en það er.
Byrjun á stuttri upprifjun. Bókun 35 er ein af mörgum bókunum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES), mikilvægasta viðskiptasamning okkar Íslendinga sem tryggir okkur aðgengi fyrir vörur og þjónustu að yfir 450 milljón manna innri markaði Evrópu án flestra hindrana eins og tolla. Bókunin sjálf er svohljóðandi: „Vegna tilvika þar sem getur komið til árekstra á milli EES-reglna sem komnar eru til framkvæmdar og annarra settra laga, skuldbinda EFTA-ríkin sig til að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum.“
Ríkin sem eru aðilar að EES-samningnum verða nefnilega að láta reglur hans hafa forgang yfir landslög þegar þau stangast á. Þannig hefur málum verið háttað hérlendis, og í hinum tveimur ríkjunum sem eru aðilar að EES (Noregi og Liechtenstein), frá árinu 1994 þegar samningurinn tók gildi.
Eftir að þjóðin hafnaði því að ljúka viðræðum við Evrópusambandið í sumar þá er mikilvægi EES-samningsins enn mikilvægara. Ekki taka mín orð fyrir það. Hlustið til að mynda á Lilju Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins, sem sagði í Silfrinu í sumar að EES-samningurinn væri lykilsamningur í utanríkisstefnu Íslands eða Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, sem sagði í sama þætti að EES-samningurinn væri allt annað en full aðild og að hann hefði gert mikið gagn. Nú eða Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, sem sagði í blaðagrein á svipuðum tíma að „viðskiptahagsmunir okkar byggjast á EES“.
Það liggur nefnilega fyrir að bókun 35 er réttindamál fyrir Íslendinga svo þeir fái það sem EES-samningurinn tryggir þeim, fyrirtækjum landsins þá vernd sem samningurinn felur í sér og ríkissjóð svo hann þurfi ekki að greiða skaðabætur til þeirra sem verða fyrir þessum réttindabrotum.
Súrt nammi í Njarðvík og fæðingarorlof
En aftur að upprifjuninni. EES veitir okkur sem sagt nokkurs konar aukaaðild að Evrópusambandinu. Við þurfum ekki að taka upp allt regluverk þess en í staðinn höfum við ekki bein áhrif á þær ákvarðanir sem við höfum skuldbundið okkur til að innleiða. Ef við neitum að innleiða þær þá er EES-samningurinn, og allur sá ávinningur sem honum fylgir, í uppnámi.
Þegar Íslendingar skrifuðu undir EES-samninginn fyrir meira en 30 árum lofuðum við að innleiða bókun 35 og töldum okkur hafa gert það. Svo féll dómur árið 2010 í Biðskýla-málinu svokallaða, en Biðskýlið var sjoppa í Njarðvík. Fimm ára stúlka hafði keypt súran innfluttan sælgætisúða í sjoppunni sem olli henni líkamlegum skaða. Mál var höfðað og í því skapaðist ágreiningur um hver bæri ábyrgð á þessari gölluðu vöru.

Biðskýlið í Njarðvík er þekkt kennileyti þar. Sjoppa sem skipar stóran sess í huga margra. Hún er nú orðin órjúfanlegur hluti af íslenskri réttarfarssögu. Mynd: Skjáskot
Hæstiréttur Íslands úrskurðaði að íslensk lög um hlutlæga ábyrgð sjoppunnar sem dreifingaraðila legðu ríkari ábyrgð á hana en sameiginlegar reglur EES. Þess vegna var sjoppan gerð ábyrg fyrir gallaðri vöru sem hún framleiddi sannarlega ekki og átti mjög erfitt með að ganga úr skugga um að væri annað en súrt nammi sem óhætt væri að borða.
Síðar féll dómur í fullskipuðum Hæstarétti Íslands í máli konu, læknis sem flutti heim frá Danmörku ólétt en fékk einungis lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi vegna þess að hún hafði starfað erlendis á viðmiðunartímabilinu. EFTA-dómstóllinn taldi að miða ætti við tekjur launþega í sambærilegri stöðu á Íslandi en Hæstiréttur taldi hins vegar skýrt íslenskt lagaákvæði standa þeirri niðurstöðu í vegi og sýknaði ríkið. Konan varð af réttum greiðslum en fékk fyrr á þessu ári dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna málsins. Ríkið þurfti að greiða henni skaðabætur vegna þess að bókun 35 var ekki rétt innleidd.
Þórdís: Vandamál sem þurfti að leysa
Við þurftum ekkert niðurstöðuna í fæðingarorlofsmálinu til að vita þetta allt saman. Það eru enda liðin sjö ár síðan Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi frá sér rökstutt álit þar sem fram kom að stofnunin teldi að Ísland hefði ekki innleitt bókun 35 réttilega. Ef það yrði ekki gert þá væri næsta skref ESA að vísa málinu til EFTA-dómstólsins.
Árið 2022 fól Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þá utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokks, starfshópi að vinna drög að frumvarpi til bættrar innleiðingar á bókun 35. Á meðal þeirra sem sátu í þeim starfshópi er Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra og nú þingmaður Miðflokksins
Í apríl 2023 mælti Þórdís Kolbrún svo fyrir frumvarpi um innleiðingu á Bókun 35 í íslensk lög. Í framsögu sinni sagði hún meðal annars að hún liti svo á „að það sé mín ábyrgð sem utanríkisráðherra, sem sit í embætti þar sem mér er falið að standa vörð um íslenska hagsmuni og standa vörð um EES-samninginn, að leggja til þessa leið og tel að þetta sé sú leið sem er helst fær til að leysa þann vanda sem mjög fáir eru á þeirri skoðun að sé ekki vandamál.“
Friðjón R. Friðjónsson, varaþingmaður flokks hennar, tók undir framsöguræðuna og sagði meðal annars að „Bókun 35 framselur ekki lagasetningarvald.“
Ekki tókst að afgreiða málið.
Bjarni: „Ein vægasta leiðin til að bregðast við“
Þegar málið rataði aftur inn í þingsal í umræðu um skýrslu utanríkisráðherra vegna bókunar 35, í febrúar 2024, var Bjarni Benediktsson orðinn ráðherra þess málaflokks. Hann hafði skipt um stól við Þórdísi eftir að hann sagði af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra vegna þess að hann hafði skort hæfi til að taka ákvörðun um að selja félagi í eigu föður síns hlut ríkisins í Íslandsbanka. Í ræðu þá sagði Bjarni: „Það sem segir í lögunum er skýrt. EFTA-ríkin hafa skuldbundið sig til að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum þegar árekstrar verða milli EES-reglna og annarra settra laga, EES-reglna sem komnar eru til framkvæmda. Ég myndi segja að þetta sé ein vægasta leiðin til að bregðast við, sú leið sem var kynnt hér fyrir þinginu í fyrra. En í ljósi þess hve þinginu gekk illa að klára málið þá er ég að reyna að endurvekja umræðu um þetta.“
Framsóknarflokkurinn, þá í ríkisstjórn, tók líka þátt í umræðunni um bókun 35 á þessum tímapunkti. Þáverandi þingmaður flokksins, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, varði frumvarpið í umræðu um skýrsluna og hafnaði því að hendur Alþingis yrðu bundnar. Hún sagði meðal annars að „vald til lagasetningar er og verður því alltaf hjá Alþingi“ og „Það er skýrt af öllu því sem fram hefur komið við ítarlega athugun á þessu máli að við erum ekki að brjóta gegn stjórnarskrá Íslands og það sem mikilvægast er að halda uppi er að við erum ekki með þessari bókun að framselja löggjafarvald okkar til Evrópusambandsins.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Bjarni Benediktsson skiptust reglulega á að vera utanríkisráðherrar á síðasta kjörtímabili. Þau voru sammála um að það þyrfti að innleiða bókun 35. Mynd: RÚV
Eftir að Þórdís Kolbrún tók að nýju við utanríkisráðuneytinu kom fram á þingmálaskrá að til stæði að leggja fram frumvarp til bættrar innleiðingar á bókun 35 að nýju á haustþingi 2024.
En svo sprakk ríkisstjórnin. Og ný ríkisstjórn fékk það eins og svo margt annað þarfti og nauðsynlegt í arf.
Frumvarp þess efnis var lagt fram í febrúar 2025. Samflokksmaður Hafdísar Hrannar og þáverandi formaður Framsóknar, Sigurður Ingi Jóhannsson, tók þátt í umræðu um málið. Hann benti á að Hæstiréttur Íslands hefði einfaldlega sagt við löggjafann: þið verðið að laga þetta. Þegar það hafi gerst „sé eðlilegra og betra að fylgja því frekar en að taka slaginn við dómstólinn (innskot EFTA-dómstóllinn) og verjast þar og láta þvinga okkur til þess að taka upp eitthvað sem þeir munu segja.“
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, lét ekki sitt eftir liggja í þessari umræðu, talaði fyrir því að Alþingi tæki sjálft á málinu og hafnaði fullveldisframsali. „Við í Framsókn viljum halda í þetta forræði. Það er löggjafans að leysa þessi mál, ekki ESA.“
Guðrún: „Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessu“
Í júní 2025 hélt Guðrún Hafsteinsdóttir, þá orðin formaður Sjálfstæðisflokks, ræðu í þinginu þar sem hún talaði fyrir samþykkt bókunar 35. Í ræðunni vitnaði hún meðal annars í nýlega uppkveðinn dóm Hæstaréttar þar sem fram kom að 3. grein laga um EES væri ekki í samræmi við EES-samninginn og að það þyrfti að innleiða bókun 35 til að laga það. „Við getum ekki látið það sem vind um eyru þjóta. Ef við viljum vera hluti af EES-samningnum verðum við að uppfylla skyldur okkar gagnvart honum og skyldur okkar þar með gagnvart öðrum aðildarríkjum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessu.“
Hún bætti svo við að „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð lagt áherslu á skýra lagasetningu, vandað regluverk og að standa vörð um réttarstöðu borgaranna. Við höfum líka staðið vörð um samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi. Með samþykkt bókunar 35 styðjum við við þessar meginreglur. Við tryggjum fyrirsjáanleika í réttarframkvæmd, réttindi fyrirtækja og einstaklinga og eflum trúverðugleika íslensks réttar í alþjóðlegu samhengi. Við megum ekki gleyma að með því að standa við skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum sýnum við að við erum áreiðanlegur samstarfsaðili. Það skiptir máli fyrir viðskipti okkar, fyrir stöðu Íslands í samningaviðræðum og fyrir alþjóðlegt traust á íslenskum stjórnvöldum.“
Í lok ræðu sinnar sagði Guðrún að hún teldi „þetta ekki vera framsal á valdi heldur nauðsynlegt og ábyrgt skref.“
Þórdís aftur: Löggjafinn á að sinna sinni vinnu og gera þetta
Málið var enn og aftur lagt fram í september í fyrra. Þá tók Þórdís Kolbrún, sem síðar hætti á þingi og gerðist sendiherra, til máls. Hún talaði mannamál í niðurlagi ræðu sinnar og sagði að þrátt fyrir að „það megi alveg velta upp mismunandi möguleikum og kannski væri bara þægilegra eða betra eða eitthvað að leyfa málinu að malla til Brussel þá er ég þeirrar skoðunar að það eigi ekkert endilega alveg heima í þessari umræðu vegna þess að mér finnst ekki skipta máli að hvaða niðurstöðu dómstóll í Brussel kemst þegar við erum með fyrir framan okkur niðurstöðu Hæstaréttar sem er æðsti dómstóll á Íslandi.“
Vilji menn innleiða bókunina með réttum hætti þannig að hægt sé að taka tillit til bókunar 35 og samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, þá þurfi að gera breytingar. „Hæstiréttur gerir það ekki. Ríkisstjórnin ein gerir það ekki. Það er löggjafinn sem getur gert það og ég er þeirrar skoðunar að löggjafinn eigi þar með að sinna sinni vinnu og gera það.“
Voru með en eru nú á móti
Frumvarp um bókun 35 var afgreitt úr nefnd í byrjun viku. Mælt var fyrir því í september enda augljóst að það þyrfti að klárast fyrst Ísland er ekki að fara inn í Evrópusambandið í fyrirsjáanlegri framtíð. Hildur Sverrisdóttir, sem situr í utanríkismálanefnd fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, var spurð hvort hún myndi samþykkja frumvarpið í Silfrinu þann 14. september síðastliðinn. Svarið var nokkuð skýrt: „Já, ég myndi gera ráð fyrir því.“
Hildur Sverrisdóttir í Silfrinu, 14. september 2026. Heimild: RÚV.
Nú, rúmum tveimur mánuðum síðar, hefur orðið algjör kúvending á afstöðu Sjálfstæðisflokksins í málinu, og reyndar Framsóknarflokksins líka. Báðir flokkar, sem stóðu áður að framlagningu frumvarpa um bókun 35 og sem innihalda þingmenn sem hafa haldið innblásnar ræður til stuðnings málinu, eru nú á móti. Nú ætla flokkarnir tveir að skýla sér á bak við það að ESA þraut loks þolinmæðina, eftir rúmlega sjö ára bið eftir aðgerðum, og stefndi íslenska ríkinu fyrir EFTA-dómstólinn til að innleiða bókunina.
Svo virðist sem stefnunni hafi fylgt pólitískur viðauki sem drepur allan trúverðugleika áðurnefndra flokka í utanríkismálum og nú á að „bíða eftir hvaða niðurstöðu dómstóll í Brussel kemst að“ frekar en að Íslendingar taki eigin ákvarðanir sem leysi málið, standi við skuldbindingar sínar og geri það að verkum að mál ESA verði fellt niður, enda óþarft eftir rétta innleiðingu.
Skrýtin staða þegar Miðflokkur er stöðugleikinn
Enn og aftur eru þessir gömlu valdaflokkar íslenskra stjórnmála að sýna fram á það í verki að það er ekki hægt að taka þá alvarlega undir þeirri forystu sem þeir lúta nú. Flokkar sem haga sér svona eru lítið annað en pólitískir veifiskatar og ekki stjórntækir.
Það segir ýmislegt um ástand stjórnarandstöðunnar í íslenskum stjórnmálum að hinn popúlíski-menningarstríðsflokkur Sigmundar Davíðs, sem heitir því öfugnefni Miðflokkurinn, sé að sýna mestan stöðugleika í skoðunum. Þótt trúðasýningin sem hann ætlar að setja á fót næstu daga og vikur sé að verða einn þreyttasti dagskrárliður íslenskra stjórnmála þá er hann þó endurtekið efni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson elskar fátt jafn mikið og að hræða landsmenn með ógninni að utan. Varaformaður hans hefur daðrað við að ganga enn lengra og talar fyrir einangrunarhyggju. Mynd: Alþingi
Eina spurningin er hvort flokkurinn ætli að flauta sama gamla lagstúfinn eða nýja lagið sem varaformaður hans söng svo hátt í ræðu fyrir réttu ári, þegar hann sagðist vilja skoða að Ísland myndi segja sig úr EES-samningnum.
Skaðlegar og óábyrgar hugmyndir pólitískra útsöluvara
Nú þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ætla að elta Miðflokkinn út í þennan skurð er viðeigandi að gera orð Þórdísar Kolbrúnar, sem eitt sinn var framtíð hófsama og ábyrga hægrisins í Sjálfstæðisflokknum en var fórnað fyrir pólitískar útsöluvörur, að umtalsefni þegar Snorri Másson viðraði hugmyndir sínar um EES-lausa og einangraða veröld fyrir Íslendinga. Þá sagði hún orðrétt: „Tortryggni Miðflokksins í garð hugmyndafræði um frelsi og alþjóðlegt samstarf gat kannski ekki endað öðruvísi en með hugmyndum um að Ísland segði sig frá Evrópska efnahagssvæðinu og hætti í EES.
Ég tel hugmyndina skaðlega og óábyrga. Samt fagna ég henni.
Það er hollt fyrir lýðræðið að valkostir séu skýrir og stjórnmálamenn segi það sem þeir eru raunverulega að hugsa. Þá gefst tækifæri til dýpri umræðu um framtíð Íslands.
Næsta verkefni Miðflokksins er að útskýra hvernig Íslandi væri betur borgið í efnahagslegu, menningarlegu, öryggislegu og pólitísku tilliti ef við setjum aðgengi að okkar langstærsta markaði í uppnám og fórnum frelsi okkar til þess að ferðast, mennta okkur, skapa og starfa hindranalaust í þeim ríkjum sem standa okkur næst.“
Ég er sammála Þórdísi Kolbrúnu. Nema nú er það ekki bara Miðflokkurinn sem er skaðlegur og óábyrgur og þarf að svara. Það eru líka gamli flokkurinn hennar og sögulega varadekkið hans líka.

