LogoKjarnyrt
Login
Skráðu þig á póstlistann hér
LogoKjarnyrt
Oliver Buchannon
Þórður Snær Júlíusson

Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, fyrrverandi ritstjóri Heimildarinnar og Kjarnans og fyrrverandi viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins. Höfundur tveggja bóka, Ísland ehf (2013) og Kaupthinking (2018). BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MSc í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Edinborgarháskóla. Eiginmaður og tveggja barna faðir.

Þegar hópur fékk 20 prósenta afslátt af Íslandi

Jun 26, 2026

•

11 min read

Þegar hópur fékk 20 prósenta afslátt af Íslandi

Á Íslandi er hópur fólks sem byggir völd sín og velmegun á því að leikreglurnar og kerfin í þjóðfélaginu hafi verið sveigð að hans hagsmunum. Þessi hópur er nú hræddur vegna þess að verið er að afnema forréttindi hans eftir að flokkunum sem hann hefur tangarhald á var hafnað í kosningum. Hræddastur af öllu er hann við þá auknu samkeppni sem þessi hópur sjálfskipaðra náttúrutalenta þarf að takast á við ef Ísland eykur samstarf sitt við Evrópu. Þetta er ekki stór hópur, en hann telur sig eiga Ísland. Að hluta til eignaðist hann stóra bita í gegnum ótrúlegt fyrirkomulag sem sett var upp eftir bankahrunið og tryggði þeim sem höfðu komið peningum út úr landinu áður en höft voru sett upp tækifæri til að fá heilbrigðisvottorð á þá peninga og 20 prósenta afslátt á eignum á Íslandi.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Það er svo grátlega erfitt að vera banki á Íslandi

Jun 19, 2026

•

9 min read

Það er svo grátlega erfitt að vera banki á Íslandi

Á síðustu dögum hefur verið reynt að telja okkur trú um að það sé í raun ódýrt að versla í matinn á Íslandi, að vaxtakjör á húsnæðislánum hérna séu ekki hræðileg heldur frábær og að ábyrg efnahagsstjórn sé ekkert annað en aðför að bönkum með allt of háa arðsemiskröfu. Umræðan minnir sífellt meira á þá sem átti sér stað fyrir ári þegar hagsmunahægrið hneppti niður að nafla, þyrlaði í hvítvíni og reyndi að gaslýsa þjóð frá því að leiðrétta veiðigjöld á stórútgerðina.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Sárindavélin sem er að éta börnin sín

Jun 12, 2026

•

9 min read

Sárindavélin sem er að éta börnin sín

Fjarhægrið sem sagðist fyrirlíta fórnarlambavæðingu hefur búið til sína eigin. Gagnrýni á refsigleði, útilokunarmenningu og tilfinningalegt neitunarvald er sjálf orðin að sárindavél sem er svo mikið keyrð þessi dægrin að hún er við það að bræða úr sér. Hún krefst þess nú að ranghugmyndir fái sama vægi og þekking, að sérfræðingar séu tortryggðir fyrir það eitt að styðjast við gögn og að opinber umræða lúti kröfum þeirra sem þola ekki að heimurinn sé flóknari en slagorðin þeirra.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Viðskiptalífið í krónuhagkerfinu: Lokað íslenskt valdakerfi sem þarf að opna

Jun 5, 2026

•

12 min read

Viðskiptalífið í krónuhagkerfinu: Lokað íslenskt valdakerfi sem þarf að opna

Stjórnmál verða óheiðarlegust þegar þau hætta að snúast um staðreyndir og fara að snúast um að halda við einhverjum völdum. Það sést skýrt í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Þar er almenningi sagt að samningsmarkmið liggi ekki fyrir, að ekkert sé til að semja um, að kostnaður krónunnar sé óljós og að leyndarhyggja ráði för. Allt er þetta rangt, eða í besta falli vísvitandi villandi. Kjarni málsins er einfaldur: þjóðin á að fá að vita hvaða valkostur stendur til boða. Hún á að fá samning á borðið, meta kosti hans og galla, og taka svo sjálf ákvörðun. Andstaðan við það snýst ekki um lýðræðislega varfærni heldur ótta við að lokað íslenskt valdakerfi verði opnað. Krónuhagkerfið, fákeppnin, húsnæðisbraskið og samkrull fjármagns og stjórnmála hafa búið til samfélag þar sem fáir njóta en almenningur borgar reikninginn. Evrópuumræðan snýst því um meira en Evrópusambandið. Hún snýst um hvort við viljum fleiri möguleika eða áfram lokað kerfi.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Kvótakerfið sem varð að valdakerfi

May 29, 2026

•

8 min read

Kvótakerfið sem varð að valdakerfi

Í lok síðustu viku var birt skýrsla sem sýnir að stærstu útgerðir landsins eigi yfir 400 milljarða króna af eignum í öðrum fyrirtækjum í lok árs 2024. Þrjár stærstu útgerðirnar áttu meira en helminginn af þessum eignum og fyrir liggur að flestar þeirra féllu til á áratug. Samt er þetta brotakennd mynd. Stikkprufur sýna að eignir upp á að minnsta kosti tugi, ef ekki hundruð, milljarða króna voru ekki taldar með. Umfang samþjöppunar og fákeppni í landi þar sem ofurríkar útgerðarfjölskyldur eignast sífellt stærri sneið af samfélaginu er mun meira en skýrslan gaf til kynna. Og þá vakna upp spurningar. Fyrir hvern er þetta kerfi eiginlega? Og hvað ætlum við að gera í því?

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Pólitísk innrömmun og raunveruleikinn

May 22, 2026

•

9 min read

Pólitísk innrömmun og raunveruleikinn

Það kallast innrömmun í pólitík þegar eitthvað er sett fram með ákveðnum hætti svo fólk túlki það út frá tilteknu sjónarhorni. Sá sem nær að skilgreina málið nær enda oft forskoti í umræðunni. Innrömmun getur verið veik þegar hún er einungis sett fram af tilfinningu eða meðvituðum ósannindum eða sterk ef hún er látin hvíla á staðreyndum og gögnum. Þetta skal hafa skýrt í huga þegar fylgst er með innrömmuninni um sveitarstjórnarkosningarnar sem fóru fram um síðustu helgi.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Borg fyrir fólk eða meira malbik með valdboði og útdeilingu gæða fyrir suma

May 15, 2026

•

12 min read

Borg fyrir fólk eða meira malbik með valdboði og útdeilingu gæða fyrir suma

Þegar jafnaðarfólk tók við stjórn Reykjavíkur árið 1994 var leikskólabyltingunni hrint í gagnið með tilheyrandi áhrifum á þátttöku kvenna á vinnumarkaði og stjórnsýslu borgarinnar var breytt úr valdboði við útdeilingu gæða til sumra í þjónandi stjórnsýslu. Á síðustu áratugum hefur Reykjavík vaxið meira en nær allar höfuðborgir Evrópu og lífsgæði þeirra sem í henni búa eða sækja hana heim hafa margfaldast. Allar stærstu ákvarðanir sem teknar hafa verið í skipulagsmálum, samgöngum, rekstri, leikskólamálum og öðru tilfallandi hafa verið réttar. Á morgun verður kosið hvort horfið verði af þeirri leið, oft með vísun í vaxtaverki, eða hvort Reykjavík haldi áfram á sömu braut.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Sveitarfélög og borgir eru ekki fyrirtæki heldur samfélög

May 8, 2026

•

7 min read

Sveitarfélög og borgir eru ekki fyrirtæki heldur samfélög

Sveitarfélag eða borg eru ekki fyrirtæki og það ætti engum að detta í hug að reka þau sem slík. Fyrirtæki eru rekin til að hagnast, geta valið viðskiptavini sína og hætt óarðbærri starfsemi með einu pennastriki. Sveitarfélög verða hins vegar að veita öllum þjónustu, líka þegar hún er kostnaðarsöm. Tekjur þeirra eru bundnar sköttum og þau bera samfélagslega ábyrgð til langs tíma. Það er mikilvægt að hafa í huga í komandi kosningum.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Reykjavík er einfaldlega best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu (Staðfest)

May 1, 2026

•

10 min read

Reykjavík er einfaldlega best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu (Staðfest)

Staðreyndin er einfaldlega sú að Reykjavík er best rekna sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins og það eina sem getur borgað gjaldfallnar skuldir sínar á yfirstandandi ári án þess að taka yfirdrátt eða selja eignir. Staðreyndin er sú að borgin dregur vagninn í félagslegri þjónustu, uppbyggingu á almennu og félagslegu húsnæði, í menningu og fjárfestingu innviða. Staðreyndin er sú að þetta gerir Reykjavík án þess að leggja gjaldakláfa á íbúa sína, án þess að selja verðmætar eignir á tombóluprís til að eiga fyrir skuldum eða rekstri og án þess að tefla fjárhag höfuðborgarinnar í hættu.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Gremjupólitík að detta úr tísku á meðan maður á negldri Teslu spyr hvað sé í gangi

Apr 24, 2026

•

10 min read

Gremjupólitík að detta úr tísku á meðan maður á negldri Teslu spyr hvað sé í gangi

Pólitík sveiflast oft eins og pendúll. Ýmsar stefnur njóta tímabundinnar hylli en ganga svo rækilega fram af fólki þannig að það verður fljótt afhuga. Það virðist vera að gerast með Miðflokkinn um þessar mundir. Eftir því sem hann bætir við gremju gagnvart fleiri minnihlutahópum eða sýnir skýrar á spilin um raunverulegt innihaldsleysi sitt þá fækkar þeim sem segjast styðja flokkinn. Það er sérstaklega athyglisvert að mýtan um að allir ungir karlar landsins séu að flykkjast í Miðflokk er ekkert annað en það, mýta. Kannanir sýna svart á hvítu að jafnaðarmennska, umburðarlyndi og samhyggð eru miklu vinsælli hjá framtíð þjóðarinnar en gremjan og óþolið gagnvart öllu innfluttu eða öðruvísi.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Íslensk króna á hækjum eða evra með aðild að Evrópusambandinu?

Apr 17, 2026

•

10 min read

Íslensk króna á hækjum eða evra með aðild að Evrópusambandinu?

Það eru ekki margar þjóðir sem ræða jafn mikið um gjaldmiðilinn sinn og við Íslendingar, eigendur íslensku krónunnar. Lengi vel hafði hún í huga margra skýra kosti, sem fólust þó að mestu í gengisfellingu þannig að launafólk sem fékk borgar í krónum var látið axla verðstöðugleikann. Frá því að höft voru losuð hérlendis fyrir tæpum níu árum höfum við verið með það sem kallast króna á hækjum þar sem henni er haldið innan vikmarka með varúðartækjum og inngripum. Þorra þessa tíma hefur verðbólga verið yfir markmiði og vextir háir. Fyrir liggur að einungis einn annar raunhæfur valmöguleiki er fyrir Ísland í gjaldmiðlamálum: að taka upp evru með því að ganga í Evrópusambandið. Það er ekki töfralausn en gæti leitt af sér lægri vexti, meiri samkeppni og aukinn stöðugleika fyrir íslensk heimili og fyrirtæki.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Viljum við ráða okkur sjálf eða viljum við láta hræða okkur til hlýðni?

Apr 10, 2026

•

18 min read

Viljum við ráða okkur sjálf eða viljum við láta hræða okkur til hlýðni?

Þótt allt virðist stundum vera að fara til fjandans og sú mynd sem dregin er upp af sálarlífi þjóðar í miðlum geti valdið miklum hugarbrotum þá sýnir ný könnun að Ísland hefur alls ekki glatað því sem gerir það gott, réttsýnt og framfarasinnað. Skýr vilji til að bera ábyrgð hvert á öðru og mynda þéttofið samfélag er enn ráðandi afl. Það má hins vegar ekki taka augun af því að hér þrífast líka öfl sem vilja alls ekki láta þjóðarviljann ráða þann veg sem við rötum. Það á við á fleiri flötum en einum og undirliggjandi er alltaf varðstaðan um gamla Ísland fákeppni og einokunar og vilji til að viðhalda völdunum sem slíku kerfi fylgja.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Orkufyrirtækin komin aftur á pólitíska matseðilinn

Apr 3, 2026

•

12 min read

Orkufyrirtækin komin aftur á pólitíska matseðilinn

Íslensku orkufyrirtækin, hvort sem þau framleiða eða dreifa orku, eru sennilega okkar mikilvægustu innviðir. Samfélagið stóð að stofnun þeirra og tók áhættuna af uppbyggingu þeirra. Á bankabóluárunum var mikill þrýstingur á að koma þessum fyrirtækjum í einkaeigu og sum sveitarfélög seldu stóra hluti í þeim til að þjónusta þær pólitísku kreddur. Upp á síðkastið hafa sambærilegar vondar hugmyndir verið að vakna úr dvala. Hægrið er mætt af fullum krafti til að reyna að selja eignirnar ykkar.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Stétta- og menningarstríð hægrisins á Íslandi tekur á sig skýra mynd

Mar 27, 2026

•

17 min read

Stétta- og menningarstríð hægrisins á Íslandi tekur á sig skýra mynd

Það geisa tvenns konar stríð á pólitískum vígvelli Íslands, þar sem ofsi og ábyrgð takast á. Annað snýst um að etja stéttum saman í baráttu um sneiðar af efnahagslegu kökunni og hitt að etja hópum saman í innfluttum átökum um gildi, siðferði og menningu. Alls konar vopnum er beitt, til dæmis efnahagslegri þjóðernishyggju, fullyrðingum um öryggisógn sem eiga sér oftast nær engar stoðir í raunveruleikanum og mikilli dreifingu á röngum eða villandi upplýsingum. Síðasta vika hefur sýnt það svart á hvítu hvar íslensku hægriflokkarnir og fjölmiðlarnir þeirra hafa grafið sínar skotgrafir í þessu stríði og hvernig þeir ætla að heyja það.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Útgerðir sem mala gull og gengu í evruna vegna mikilvægis Evrópu

Mar 20, 2026

•

16 min read

Útgerðir sem mala gull og gengu í evruna vegna mikilvægis Evrópu

Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins hafa skilað metafkomu eftir að lög um leiðrétt veiðigjöld voru samþykkt í fyrrasumar eftir Íslandsmet í málþófi. Sú svartnættismynd sem fulltrúar stórútgerða á Alþingi máluðu upp á sér enga stoð í veruleikanum og markaðsvirði umræddra tveggja fyrirtækja hefur vaxið samanlagt yfir 130 milljarða króna á átta mánuðum. Verð hafa verið í hæstu hæðum og eftirspurn eftir íslenskri vöru gríðarleg. Þá hjálpaði loðnukvóti verulega til. Þessi tvö fyrirtæki gera nú bæði upp í evrum vegna þess að stærstu markaðir þeirra eru í Evrópu og þar eru helstu vaxtatækifærin í fyrirsjáanlegri framtíð.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Þeir sem berjast um Ísland og við sem berjumst fyrir það

Mar 13, 2026

•

18 min read

Þeir sem berjast um Ísland og við sem berjumst fyrir það

Eftir bankahrunið lofuðu Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, þá undir forystu andlags Miðflokksins, ítrekað að leyfa þjóðinni að ákveða stöðu Íslands í Evrópusamstarfi. Þegar þeir svo komust til valda sviku þeir það og söltuðu meira að segja málið án þess að þingið fengi að hafa aðkomu að því. Það tók rúman áratug að koma hagsmunahægrinu og fáveldispólitík þess frá völdum á ný og við það opnaðist möguleiki til að láta þjóðina ákveða eigin örlög og efna til þjóðaratkvæðis um hvort Ísland eigi að fara í viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Ríkisstjórn sem treystir þjóðinni vill fá leiðsögn hennar í málinu og setja það í hennar hendur. Sem vill láta meirihlutann ráða. Flokkarnir og leiðtogarnir sem standa fyrir innfluttri pólitík útilokandi þjóðerniskenndar og draumsýnar um bjarta fortíð treysta þjóðinni hins vegar ekki fyrir því að hafa vit fyrir sjálfri sér.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Efnahagskerfi sem hefur ekki vaxið í áratug þegar leiðrétt er fyrir fólksfjölgun

Mar 6, 2026

•

19 min read

Efnahagskerfi sem hefur ekki vaxið í áratug þegar leiðrétt er fyrir fólksfjölgun

Hagvöxtur á mann á Íslandi frá árinu 2018 er enginn, og það er með því lakasta sem fyrirfinnst á Vesturlöndum á tímabilinu. Sá hagvöxtur sem var á Íslandi á þessu tímabili var drifinn áfram af mestu fólksfjölgun í okkar heimshluta með tilheyrandi álagi á húsnæðismarkað, heilbrigðiskerfi, samgöngur, löggæslu, menntakerfi og allt hitt. Nú er verið að snúa þessu við með því að undirbyggja raunverulegan hagvöxt til að standa undir aukinni velferð. Og þrátt fyrir endalausan barlóm hjá hagsmunahægrinu á þingi, í fjölmiðlunum þeirra, hugveitunum og hagsmunagæsluörmunum þá sýna undirliggjandi spár að það er bjart fram undan í íslensku efnahagslífi.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Dýr mistök sem mögnuðust upp vegna óheppni og við erum enn að borga fyrir

Feb 27, 2026

•

18 min read

Dýr mistök sem mögnuðust upp vegna óheppni og við erum enn að borga fyrir

Á Íslandi var hrært í eitraðan kokteil fyrir nokkrum árum með stórkallalegum örvunaraðgerðum í hagkerfinu sem skiluðu breiðustu bökunum mestu og stjórnvöld tóku sér allt of langan tíma til að draga úr. Þetta kostaði ríkissjóð mörg hundruð milljarða króna og skapaði ótrúlega stöðu um tíma. Vextir voru nánast engir, peningar fyrir vikið nánast ókeypis og verðbólga hélst samt lág. Svo kom reikningurinn. Og við höfum nú verið að borga hann í næstum fimm ár.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Hvað er eðlilegt að græða mikið í lokuðu fákeppnisumhverfi?

Feb 20, 2026

•

16 min read

Hvað er eðlilegt að græða mikið í lokuðu fákeppnisumhverfi?

Á Íslandi ríkir fákeppni á nánast öllum mörkuðum sem heimili og fyrirtæki landsins þurfa að eiga viðskipti við. Þar keppa fáir aðilar á svipuðum kjörum um markaðshlutdeild í kerfum sem meira og minna eru lokuð fyrir erlendri samkeppni. Stærsta slíka kerfið er bankakerfið. Þar hefur hagnaður vaxið mikið síðustu ár, arðsemi er meiri en gengur og gerist og það kostar minna að græða meira en víðast hvar í heiminum. Undirstaðan í þessum mikla hagnaði eru vaxtatekjur vegna lána sem bankar hafa veitt íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Í stað þess að huga að því hvort arðsemiskröfurnar séu mögulega of miklar á lokuðum fákeppnismarkaði eru bankarnir að færa sig í hina áttina. Þeir vilja hagnast meira.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Hagsmunahægrinu er alveg sama þótt það taki sér far með menningarstríðinu

Feb 13, 2026

•

17 min read

Hagsmunahægrinu er alveg sama þótt það taki sér far með menningarstríðinu

Sumir stunda stjórnmál þar sem útlit, frásögn og sjálfsmynd skipta meira máli en pólitísk afstaða og efnisleg áhrif. Aðrir leggja mesta áherslu á að skipta fólki upp í „gott“ og „vont“, selja þá hugmynd að lífsgæði séu takmörkuð stærð og boða á baki þess útilokandi þjóðerniskennd, draumsýnir um bjarta fortíð og almennt hatur á frjálslyndi, jöfnuði og alþjóðasamvinnu. Að endingu eru þetta þó oftar en ekki farartæki fyrir þá sem stunda klassíska stéttarbaráttu til að taka sér far með í það sinn. Undirliggjandi er alltaf slagurinn um hverjir eigi að njóta samfélagsins mest, hinir mörgu eða hinir fáu.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Er það almannahagur að selja gullgæs í heild sinni með afslætti?

Feb 6, 2026

•

18 min read

Er það almannahagur að selja gullgæs í heild sinni með afslætti?

Markaðsvirði Landsbankans, sem er í eigu íslenska ríkisins, er sennilega vel á fimmta hundrað milljarða króna. Hann greiðir eiganda sínum nálægt tveimur tugum milljarða króna í hefðbundinn arð á ári og á marga tugi milljarða króna í umfram eigið fé sem hægt er að „tappa af“ án þess að það hafi nein áhrif á þær kröfur sem eftirlitsaðilar gera til bankans. Landsbankinn hefur enda boðað sérstaka arðgreiðslu í ríkissjóð ár til viðbótar við þá hefðbundnu, sem var þó rúmum þremur milljörðum króna yfir því sem fjárlög reiknuðu með. Hagsmunahægrið, hvort sem það birtist í formi lobbýista, ríkisrekinna hugveitna, stjórnmálaarms þess eða fjölmiðlanna sem sjá um innrömmunina, vill nú selja þennan banka, helst með miklum afslætti, og reynir að rökstyðja það með vísun í að verðbólga hafi hækkað lítillega í tvo mánuði vegna einskiptisliða. Það hunsar hins vegar þá staðreynd að hagvöxtur er á uppleið og Seðlabankinn spáir því að verðbólgan hjaðni vel á þessu ári.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Verðbólgnar yfirlýsingar, kærkomin loðna og loksins er helvítis húsnæðisverðið að lækka

Jan 30, 2026

•

13 min read

Verðbólgnar yfirlýsingar, kærkomin loðna og loksins er helvítis húsnæðisverðið að lækka

Húsnæðis- og leiguverð hefur farið lækkandi á Íslandi síðustu mánuði. Það hefur dregið úr verðbólguþrýstingi en slíkt verð var leiðandi í vexti verðbólgunnar þegar hún rataði upp í tveggja stafa tölu í tíð síðustu ríkisstjórnar. Síðustu skrefin í að ná verðbólgunni niður í markmið eru oft flókin og hún hefur flakkað milli þess að vera undir fjórum prósentum í að skríða yfir fimm prósent á síðustu þremur mánuðum. Heilt yfir erum við þó á réttri leið og fyrirsjáanlegt er að verðbólga hjaðni á næstu mánuðum sem mun leiða til enn frekari lækkunar vaxta. Efnahagslífið er svo að sýna gríðarlegan viðnámsþrótt og markaðsvirði stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins hefur aukist um yfir 160 milljarða króna á hálfu ári. Heilt yfir er bjart fram undan fyrir íslenska þjóð.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Hvernig klofnar þjóð með því að fá að ráða eigin örlögum?

Jan 23, 2026

•

17 min read

Hvernig klofnar þjóð með því að fá að ráða eigin örlögum?

Heimurinn er að breytast hratt. Net alþjóðastofnana og leikreglna sem byggðu á samningum milli líkt þenkjandi þjóða eftir seinni heimsstyrjöld tryggði mesta velmegunartímabil mannkynssögunnar fullt af friði og framförum. Nú ríkir óvissa um þetta vegna þess að Bandaríkin, voldugasta ríki heims, hafa ákveðið það einhliða. Það kallar á breytt hagsmunamat smáríkja eins og Íslands sem hefur á baki þess farið frá því að vera fátækasta land Norður-Evrópu í að vera eitt það ríkasta. Ein þeirra ákvarðana sem þjóðin þarf að taka er hvort hún vilji sitja við borðið í Evrópusambandinu þegar ákvarðanir eru teknar þar. Loksins eru komin stjórnvöld sem treysta þjóðinni til að svara þeirri spurningu sjálf, í stað þess að láta hræðslu flokka sem var hafnað í síðustu kosningum við eigin samborgara stýra því hvernig Evrópusamstarfi Íslands sé háttað.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Leiðir til að hafna því að auður endurspegli siðferðilega yfirburði

Jan 16, 2026

•

13 min read

Leiðir til að hafna því að auður endurspegli siðferðilega yfirburði

Á Íslandi er reglulega rifist um erfðafjárskatt og hvort hann sé réttlætanlegur. Þeir sem stundi „toppinn niður“ pólitík telja hann gríðarlegt óréttlæti á meðan að þeir sem trúa á að það sé til eitthvað sem heitir samfélag telja hann ekki einungis réttlátan heldur beinlínis nauðsynlegan. Það er nefnilega þannig að þeir sem erfa háar fjárhæðir eru ekki verðmeira fólk en sá sem erfir ekkert. Og ef tilfærsla á eignum milli kynslóða er ekki skattlögð þá mun auður einnar slíkrar stjórna þeirri næstu.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Flokkarnir sem töpuðu borguðu þrisvar sinnum meira fyrir hvert atkvæði en sigurvegararnir

Jan 9, 2026

•

16 min read

Flokkarnir sem töpuðu borguðu þrisvar sinnum meira fyrir hvert atkvæði en sigurvegararnir

Það er mjög mismunandi hvað stjórnmálaflokkar þurfa að eyða af peningum til að ná hylli íslenskra kjósenda og í síðustu þingkosningum var engin fylgni milli þess sem eytt var og árangurs. Tveir aldnir valdaflokkar eyddu til að mynda samtals um 330 milljónum króna í að fá verstu kosninganiðurstöðu sína í sögunni upp úr kjörkössunum. Fjarhægriflokkur eyddi 140 milljónum króna og situr uppi með verulega neikvætt eigið fé fyrir vikið einungis til að enda enn eitt kjörtímabilið í stjórnarandstöðu. Á meðan voru það flokkarnir sem fá minnst af peningum úr atvinnulífinu og greiddu langminnst fyrir hvert greitt atkvæði sem stóðu uppi sem sigurvegarar og mynduðu ríkisstjórn.

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júlíusson
Load more
Kjarnyrt

Kjarnyrt

Skrif um samfélag, stjórnmál, efnahagsmál og viðskipti


Home