Það er 20. maí 2026. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, er í ræðupúlti Alþingis að flytja nefndarálit síns flokks vegna þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í ræðu sinni lagði hann meðal annars til vestnorrænt efnahagssvæði Íslands, Færeyja og Grænlands og sagði raunhæft að slík heild næði fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Í andsvari gekk hann miklu lengra og sagðist „sannfærður um“ að slíkt bandalag myndi fá fríverslunarsamning við Bandaríkin „á einni viku“.

Daginn eftir tók Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, til máls á sama vettvangi og sagði að sjálfstæð samningsgeta Íslands væri rök gegn Evrópusambandsaðild og að miklir möguleikar fælust í gerð fríverslunarsamninga, meðal annars við Bandaríkin.

Þann 15. júní mætti flokkssystir Rósu, Diljá Mist Einarsdóttir, í óundirbúinn fyrirspurnartíma og spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Í spurningum Diljár komu fram þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. „Við viljum auðvitað fríverslunarsamning“ við Bandaríkin og að það ætti „að vinna stöðugt“ í gerð hans.

Auðvelt að fá fríverslunarsamning

Á þessum tíma, síðasta sumar, var Áfram Ísland, hræðslubandalag um gamla Ísland, komið á fullt í að ljúga þjóðina fulla af hræðsluáróðri um að aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu skila börnunum okkar í erlenda heri, gefa frá okkur yfirráð yfir auðlindum og að sæstrengur yrði sennilega lagður til landsins á mánudeginum eftir atkvæðagreiðsluna ef Já hefði orðið ofan á, til að hirða hér alla umframorku Íslands til eigin nota.

Það er auðvitað nánast tragíkómísk framsetning í ljósi þess að sterkustu hagsmunaöflin á bak við þessa leiksýningu hafa sjálf slegið eign sinni á sömu auðlindir og þau sögðu „okkur“ vera að missa.

Áfram Ísland hélt fund á Selfossi 22. júlí síðastliðinn. Þar var Guðmundur Fertram Sigurjónsson á meðal ræðumanna. Þar sagði hann meðal annars að Bandaríkin væru „okkar mikilvægasti útflutningsmarkaður og ég tel að við eigum að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin.“ Hann fullyrti jafnframt að mun auðveldara yrði fyrir Ísland en ESB að ná slíkum samningi.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands sem dró sjálfan sig á flot og gerði sig að andliti Nei-hreyfingarinnar, fór í rúmlega tveggja klukkutíma langt viðtal við Brotkast, hægrihlaðvarpsveitu Frosta Logasonar, í byrjun ágúst og sagði að það ætti að verða „tiltölulega auðvelt að ná fríverslunarsamningi við Bandaríkin."

Svo sagði rúmur helmingur þjóðarinnar nei og tæpur helmingur hennar já við því að klára viðræðurnar.

Trump sem hafnar algjörlega fríverslun

Gamla Ísland, sem telur að við séum til fyrir þau en ekki að þau séu að vinna fyrir ykkur, hrósaði sigri þrátt fyrir að augljóst væri hversu illa búrið þeirra var hrist með niðurstöðunni. Þau áttu ekki von á svona mikilli viðspyrnu og sáu sannarlega ekki fyrir að ríkisstjórnin myndi koma miklu sterkari út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni en hún fór inn í hana. Örvæntingin vegna þessa er nánast áþreifanleg, bæði í sölum Alþingis og á síðum Morgunblaðsins.

Við þessar aðstæður hélt leikritið um að Ísland ætti að halla sér fastar í faðm Bandaríkjanna áfram. Farið var með línurnar í þessum farsa þrátt fyrir að fyrir liggi að afstaða Trump-stjórnarinnar varðandi klassíska fríverslunarsamninga sé skýrlega sú að hún sé algjörlega og tæmandi afhuga þeim. Þess í stað hefur Trump fært viðskiptastefnu Bandaríkjanna yfir í tvíhliða samninga þar sem áherslan er á að opna erlenda markaði fyrir bandarískum vörum en verja samhliða bandaríska framleiðslu með tollum.

Ríkisstjórn Trump hefur gert slíka samninga við meðal annars Argentínu, El Salvador, Indónesíu, Malasíu og Kambódíu, ríki sem Ísland á ekki mikið sameiginlegt með og ber sig sjaldnast saman við. Enda lítið fyrir Ísland að sækja í samninga sem veita einhverjum fullan og frjálsan aðgang að okkar markaði en leyfa þeim að setja tolla á þær vörur sem við viljum flytja inn á þeirra.

Meira fríverslunarsamningagrín

Farsinn hófst 10. september þegar sex Sjálfstæðismenn lögðu fram þingsályktunartillögu um fríverslunarsvæði Íslands, Noregs, Grænlands, Færeyja, Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Flutningsmenn voru Njáll Trausti Friðbertsson, Árni Helgason, Diljá Mist Einarsdóttir, Sigurður Örn Hilmarsson, Ólafur Adolfsson og Jón Pétur Zimsen. Tillagan snerist um að fela ríkisstjórninni að hefja viðræður um slíkt samstarf.

Hann hélt áfram á Útvarpi Sögu beint í kjölfarið þar sem Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, var mætt í viðtal þar sem hún sagði orðrétt: „Mér líst mjög vel á að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin.“

Af vef Útvarps Sögu. Mynd: Skjáskot.

Næst á blað voru svo tvíeykið sem stýrir Sjálfstæðisflokknum, Guðrún Hafsteinsdóttir og Jens Garðar Helgason. Þrátt fyrir að hafa eytt hluta af sumrinu í Bandaríkjunum í að hitta forsvarsmenn þarlendra hugveitna sem bera meðal annars ábyrgð á Project 2025-verkefninu þá virðist alþjóðaviðskiptastefna Trump alveg hafa farið fram hjá þeim.

Zachary Freeman starfa sem nokkurs konar umboðsmaður fyrir Nigel Farage milli þess sem hann leiðir saman þingforystu Miðflokks og Sjálfstæðisflokks við harðar hægri hugveitur í Bandaríkjunum. Áhugi hans á þessum viðfangsefnum sínum er svo mikill að hann er með myndir af formönnum þeirra efst á reikningi sínum á X. Mynd: Skjáskot

Guðrún og Jens skrifuðu saman grein sem birtist á heimavelli í Morgunblaðinu þann 26. september síðastliðinn. Fyrirsögnin var „Íslenskir hagsmunir í Washington“. Í greininni sagði meðal annars: „Í ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins og umræðum á vettvangi Hudson Institute settum við fram skýrt markmið: Ísland á að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin.“

Engir fríverslunarsamningar í boði

Svo kom Marco Rubio, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn til Íslands til að funda með Kristrúnu Frostadóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Á blaðamannafundi eftir þá fundi sagði hann að tími fríverslunarsamninga væri liðinn. Í frétt Morgunblaðsins daginn eftir var þessi bubbla endanlega sprengd og þau afgerandi ummæli Rubio endurtekin í forsíðufrétt en pólitískur frásagnaritari Sjálfstæðisflokksins reyndi að pakka málinu inn í nýjan möguleika á tvíhliða viðskiptasamning – svona eins og gerður var við El Salvador – til að reyna að fela að utanríkismálastefna flokks hans hefði beðið skipsbrot.

Nú er alveg ljóst að Ísland á sterkt og víðfeðmt samband við Bandaríkin. Það snýst um varnar- og öryggismál og viðskipti. Ísland hefur margt að færa Bandaríkjunum og Bandaríkjamenn færa okkur margt. Sambandið er okkur afar mikilvægt og gjöfult, líkt og sést á því að forsætisráðherra hefur hitt helstu ráðamenn Bandaríkjanna síðastliðinn mánuð.

En fríverslunarsamningur öflugasta ríkis í heimi var vart möguleiki fyrir tæplega 400 þúsund manna þjóð þegar Bandaríkin voru að gera fríverslunarsamninga. Áhuginn á því hjá stórveldinu var einfaldlega enginn eins og sést á vangetu Sjálfstæðisflokksins til að gera slíkan þegar flokkurinn hefur verið í ríkisstjórn í sirka þrjú af hverjum fjórum árum sem liðin eru frá lýðveldisstofnun.

Að láta utanríkismálastefnu sína hverfast um gerð slíks samnings á sama tíma og Bandaríkjunum er stýrt af manni sem er algjörlega fráhverfur fríverslunarsamningum og hefur frekar verið að slíta slíkum en gera þá, sýnir hversu óábyrgur og óstjórntækur Sjálfstæðisflokkurinn undir stjórn Guðrúnar og Jens Garðars er.

Þar fer flokkur sem er einfaldlega ekki hægt að taka alvarlega.

Tilraunaeldhús frjálshyggjubrjálæðis

Áður en Sjálfstæðisflokkurinn drap eigin pappírsþunnu utanríkisstefnu með því að geta ekki lesið sér til gagns um stefnu og eðli Donalds Trump þá gerði flokkurinn slíkt hið sama í efnahagsmálum. Í vor kynnti flokkurinn nýjar efnahagsáherslur sínar þar sem hann sagðist ætla að lækka skatta um 140 milljarða króna með því að ráðast í tilraunaeldhús frjálshyggjubrjálæðis sem myndi sennilega eyðileggja grunngerð íslensks samfélags á örfáum árum.

Skattalækkunin átti vitanlega að uppistöðu að lenda fastast hjá þeim sem þéna mest og þeim sem eiga mest. Lækka átti tekjuskatt, opna allar gömlu skattaglufurnar fyrir ríka fólkið aftur upp á gátt, búa til skattaafslátt fyrir þá sem kaupa hlutabréf, lækka fjármagnstekjuskatt og afnema erfðafjárskatt svo erfingjar milljarðamæringa gætu sleppt því að greiða tíu prósent af erfðum eignum til ríkissjóðs í landi sem er vart með nokkra aðra eignaskatta. Allt eru þetta aðgerðir sem eru sniðnar að þeim sem láta peninga vinna fyrir sig, ekki þeim sem vinna fyrir sig með eigin hyggjuviti eða höndum.

Guðrún Hafsteinsdóttir og Jens Garðar Helgason kynntu tillögurnar sem sýndu endanlega að Sjálfstæðisflokkurinn, í því formi sem hann er í í dag, er ekki stjórntækur né fyrirbæri sem ber að taka alvarlega, í lok mars síðastliðins. Mynd: XD.is

Til að borga fyrir þessa eignatilfærslu úr samneyslunni og að uppistöðu til þeirra sem eiga mest ætti að hagræða þannig að velferðarkerfin myndu ekki virka lengur og eftirlit og aðhald með þeim sem Sjálfstæðisflokkurinn vill færa lyklana að húsinu yrði lítið eða ekkert. Koma ætti stærri hluta heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og samgönguæðum þjóðarinnar í hendur hagnaðardrifinna einkaaðila og láta þá um að sinna þessari þjónustu.

Sjálfstæðismenn vildu líka hætta við allar gjaldahækkanir sem lagðar hafa verið á í tíð sitjandi ríkisstjórnar til að fjármagna fjársvelt velferðarkerfi og skapa færi fyrir ríkið til að vinna á mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld. Þeir vildu draga til baka leiðréttingu veiðigjalds, innleiðingu kílómetragjalds og hækkun vörugjalda og standa gegn því að nokkur opinber gjöld verði lögð á greinar ferðaþjónustu.

Vilja selja allt sem hönd er á festandi

Þá átti að selja meira og minna allt sem er hönd á festandi, aðallega á undirverði. Flokkurinn vill selja allt hlutafé í Landsbankanum, Íslandspósti, Nýsköpunarsjóðnum Kríu, Sparisjóði Austurlands, Endurvinnslunni, Hviðu og ÁTVR. Hann hefur lagt til að selja fimmtung allra fasteigna sem Framkvæmdasýsla ríkisins heldur á, tíu prósent af jörðum ríkisins, 49 prósenta hlut í Isavia sem á meðal annars Keflavíkurflugvöll, 40 prósenta hlut í Landsneti sem flytur raforku út um allt land og 40 prósenta hlut í Rarik sem aflar og dreifir raforku til almennings og atvinnulífs, rekur hitaveitu á fjórum stöðum á landinu og á sex virkjanir.

Sjálfstæðisflokkurinn vill selja gríðarleg magn eigna hins opinbera, helst á undirverði. Mynd: ChatGPT

Svo vill Sjálfstæðisflokkurinn, sem lagði niður félagslega íbúðarkerfið um síðustu aldamót með stórkostlegum neikvæðum afleiðingum fyrir viðkvæmustu hópa samfélagsins, leggja niður almenna íbúðakerfið og félagslegt íbúðakerfi sveitarfélaga, sem bæði eru rekin með óhagnaðardrifnum hætti, og búa til markaðsvöru úr eignum þeirra.

Að endingu verður að minnast á að flokkurinn, sem hefur efnast gríðarlega á fasteignabraski með þéttingu byggðar og eyðingu bílastæða síðustu misserin, vildi tryggja að enginn annar stjórnmálaflokkur en hann hefði fjármagn til að starfa. Eina leiðin sem hinn getulausi getur skinið er ef það er enginn að keppa við hann.

Vilja ekki fólkið úr flokknum inn í stássstofuna

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er ekki upptekinn við að opinbera almennt getuleysi sitt út á við eyða fulltrúar hans miklu púðri í að reyna að sannfæra aðra um að ríkisstjórnarflokkarnir séu ekki stjórntækir, og þá sérstaklega Flokkur fólksins. Þegar kroppað er í yfirborð þeirrar gagnrýni þá snýst hún aðallega um að Sjálfstæðisfólki finnist fólkið í þeim flokki ekki nægilega „fínt“ til að stjórna.

En eins og forsætisráðherra sagði ágætlega í nýlegu viðtali við Gímaldið þá er Flokkur fólksins eitt það besta sem hefur komið fyrir íslensk stjórnmál. Með honum hafa hópar innan samfélagsins sem hafa aldrei átt fulltrúa við ríkisstjórnarborðið eignast slíka og mörg stefnumál þeirra ríma gríðarlega vel við efnahagslegan kjarna jafnaðarmennsku.

Við búum nefnilega í samfélagi þar sem er ekki hægt að vilja fá allt en borga aldrei fyrir það. Samfélagi þar sem við þurfum að bera ábyrgð hvert á öðru og vaxa á bak við velferð. Þar sem almennilegt fólk skammast sín sannarlega ekki fyrir að bæta hag þeirra verst settu jafnvel þótt það þýði að klippa þurfi af skattaafslætti þeirra sem eiga mest.

Það er því mikilvægt að muna, næst þegar kosið verður hérlendis, að við Íslendingar höfum margoft verið plataðir af fyrirbærum eins og Sjálfstæðisflokknum í viðleitni þeirra til að komast til valda. Nú í valdmissigremjukasti hefur hann þó vonandi opinberað sitt rétta, óstjórntæka og óábyrga sjálf endanlega.

Og nær aldrei að plata þjóðina aftur.

Reply

Avatar

or to participate