Samanlagt högnuðust stóru bankarnir þrír, Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki, um 79 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Ef sami taktur heldur áfram þá munu þeir hagnast um sirka ellefu milljarða króna umfram það sem þeir högnuðust í fyrra á þessu ári og enda í um 105 milljörðum króna.
Það verður í annað sinn sem þeir rjúfa 100 milljarða króna hagnaðarmúrinn. Fyrra skiptið var árið 2015 en það byggði á því að uppgjör Arion banka var beinlínis svívirðilegt. Bankinn hagnaðist um 50 milljarða króna það árið vegna þess að hann seldi hluti sína í fimm stórum félögum sem höfðu lent í vandræðum í bankahruninu og Arion banki fékk endurskipulagningu þeirra í vöggugjöf við stofnun. Um var að ræða fasteignafélögin Regin og Eik, Símann, alþjóðlega drykkjaframleiðandann Refresco Gerber og Bakkavör Group.
Nú er hagnaður bankanna hins vegar alls ekki tilkominn vegna eignasölu, heldur vegna þess að þeir hagnast gríðarlega á vaxtamun sem hefur farið hratt hækkandi síðustu ár og er nú 3,2 til 3,6 prósent. Minnstur er hann hjá ríkisbankanum en hæstur hjá hinum tveimur, þessum sem eru í einkaeigu. Til samanburðar þá voru bankar á EES-svæðinu almennt með, samkvæmt Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni, 1,63 prósenta vaxtamun að meðaltali.
Þar sem vaxtamunur segir til um muninn á þeim vöxtum sem bankar borga okkur fyrir peningana sem við lánum þeim í formi innlána og þeim vöxtum sem þeir leggja á peningana þegar þeir lána okkur þá til baka þá blasir við að íslenskir bankar fá mun meiri hreinar vaxtatekjur af eignagrunni sínum en aðrir bankar í álfunni.
Í krónum og aurum þýðir þetta að íslensku bankarnir þrír: Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki, bókfærðu samtals 154 milljarða króna í hreinar vaxtatekjur – tekjur af vöxtum þegar búið er að draga kostnað af vöxtum frá – á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er aukning um 24 milljarða króna milli ára.
Þessar tekjur eru um 80 prósent af öllum tekjum þeirra.
Alls 92 milljarðar til eigenda á níu mánuðum
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, skrifaði grein í Morgunblaðið í byrjun viku þar sem hann hélt því fram að sú tilfinning fólks að vextirnir sem bankar rukki endi sem hagnaður banka sé í raun misskilningur. Þar sem Landsbankinn sé í eigu ríkisins og hinir tveir bankarnir að hluta til í eigu lífeyrissjóða, í eigu almennings, þá fari vextirnir „að stórum hluta frá heimilunum til heimilanna.“

Grein bankastjóra Íslandsbanka sem birtist í Morgunblaðinu í vikunni. Mynd: Skjáskot/Mbl
Skoðum þetta aðeins.
Stóru bankarnir þrír skiluðu alls 92,1 milljarði króna í vasa eigenda sinna á fyrstu níu mánuðum ársins í formi arðgreiðslna og með endurkaupum á eigin bréfum. Glöggir lesendur sjá að það er sirka 13 milljörðum krónum meira en þeir högnuðust um á fyrstu níu mánuðum ársins.
Ríkið á sannarlega Landsbankann og lífeyrissjóðir eiga saman stóran hlut í hinum tveimur. Í hluthafahópi þeirra eru þó líka stórir einkafjárfestar, eins og Stoðir, Frigus og Hvalur, sem stýrt er af Kristjáni Loftssyni, í Arion banka. Frigus, félag Lýðs Guðmundssonar, er líka stærsti einkafjárfestirinn í Íslandsbanka, Kjölur fjárfestingafélag kemur þar á eftir og svo Heiðar Guðjónsson með 1,0 prósenta eignarhlut. Í krafti þess eignarhlutar er Heiðar stjórnarformaður bankans.
Nokkuð ljóst er að peningarnir sem íslensku bankarnir eru að græða fara því mun víðar en frá „heimilunum til heimilanna“.
Stungu lækkun í vasann
Þetta eru sömu bankarnir sem hafa hótað því ítrekað að ef bankaskattur verður hækkaður um eitthvað í kringum sex milljarða króna á ári þá muni þeir þurfa að velta þeim kostnaði yfir á heimilin og fyrirtækin í landinu.
Í þessu samhengi er alltaf hollt að rifja upp að bankaskatturinn var lækkaður verulega í kórónuveirufaraldrinum, og mun meira en til stendur að hækka hann núna. Áætlað er að þetta hafi minnkað skattgreiðslur bankanna þriggja um nokkra tugi milljarða króna á þeim tíma sem liðinn er frá þeirri lækkun. Hugmyndin var að þessi lækkun myndi skila heimilum og fyrirtækjum betri kjörum, líkt og forsvarsmenn banka höfðu árum saman lofað.
Þegar ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sem lækkaði skattinn, lét þverfaglegan hóp þéttskipaðan hagfræðingum sem komu meðal annars frá Samtökum fjármálafyrirtækja, greina hvert þessar eftirgefnu skattgreiðslur hefðu farið var niðurstaða hans sú að þeim hefði verið stungið í vasa eigenda. Með öðrum orðum urðu húsnæðis- eða fyrirtækjalánin ekkert ódýrari. Bankarnir juku einfaldlega arðsemi sína og borguðu meira út til hluthafa.
Sama gerðu þeir með ávinninginn af því að auka rekstrarhagkvæmni. Til að mæla hana styðjast fyrirtæki við svokallað kostnaðarhlutfall, hver rekstrarkostnaður þeirra er sem hlutfall af rekstrartekjum. Aukin hagkvæmni næst með ýmsum hætti. Lokun útibúa, fækkun starfsfólks og stafrænar lausnir vigta þar þungt. Kostnaðarhlutfall stóru íslensku bankanna þriggja var 59 prósent árið 2018 og 47 prósent fjórum árum síðar. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs fór það niður í 30,5 prósent hjá Landsbankanum, var 36,6 prósent hjá Arion banka og 39,9 prósent hjá Íslandsbanka. Þetta er með því lægsta sem fyrirfinnst í heiminum. Þeir eyða þremur til fjórum krónum til að græða tíu.
Græða langt umfram markmið um gróða
Bankarnir setja sér allir arðsemiskröfu. Það er markmið um hversu mikið þeir ætla að græða á ári. Minnst er hún hjá ríkisbankanum Landsbankanum, tíu prósent, en hinir tveir sem eru á einkamarkaði vilja græða meira og setja markið við 13 prósenta ávöxtun á eigin fé, sem er samanlagt um 774 milljarðar króna. Til að allir nái markmiðum sínum þurfa þessi þrjú fyrirtæki því að hagnast um sirka 100 milljarða króna á ári.
Staðan í dag er að þeir eru allir að græða umfram markmið. Mest græðir Arion banki, sem er með heil 16,3 prósent arðsemi á eigin fé, svo Íslandsbanki með 13,6 prósent og loks Landsbankinn með 13,2 prósent.
Það þarf því ekkert að efast um að það er ákaflega ábatasamt að reka banka á Íslandi, þar sem viðskiptavinirnir eru fyrst og síðast fólkið sem býr í landinu og fyrirtækin sem þar starfa.
Mikill hagnaður af verðmætu byggingarlandi
Arion banki er í ofanálag að selja eitt mikilvægasta og dýrasta byggingarland á höfuðborgarsvæðinu, Blikastaðalandið milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Einkaviðræður við óstofnaðan sjóð eignastýringarfyrirtækis standa yfir og fyrir liggur að Arion banki ætlar sér að fá milli 14 til 16 milljarða króna fyrir landið. Vel að merkja þá hefur skóflu enn ekki verið stungið í jörðina þarna eða spýta reist. Enginn grunnur að húsi er tilbúinn.
Hið ætlaða kaupverð fyrir hið óbyggða land er langt yfir bókfærðu virði Blikastaðalandsins í bókum Arion banka. Í lok september var það virði 7,6 milljarðar króna. Gangi salan eftir mun Arion banki því fá til sín 6,4 til 8,4 milljarða króna í hreinum hagnaði ofan á bókfært virði. Sú upphæð dugar bankanum til að greiða ætlaða bankaskattaviðbót í fjögur eða fimm ár, en bankanum reiknast til að hans hlutur í viðbótarbankaskatti sé um 1,7 milljarðar króna á ári.
Ágóði Arion banka mun svo nær örugglega leiða til þess að verðið á húsunum sem verða byggð þarna mun hækka. Kaupendurnir að landinu munu enda alltaf taka þennan milliliðakostnað, sem greiddur er til aðila sem hélt á landi en byggði ekkert, með í reikninginn þegar endaafurðin er verðlögð.
Þetta er ágætis ávöxtun fyrir land sem Arion banki, stofnaður með handafli ríkisins eftir bankahrun, fékk í vöggugjöf. Þegar Arion banki seldi landið milli eigin dótturfélaga árið 2020 var sú sala skráð á tæplega 5,1 milljarð króna eða næstum ellefu milljörðum króna undir efri mörkum hins ætlaða söluverðs. Ekki slæmur ágóði fyrir það að halda á landi og byggja ekkert á því í sex ár.
Það má þó taka fram að bankinn gerði uppbyggingarsamning við Mosfellsbæ um að byggja 3.500 til 3.700 íbúðir, eitthvað atvinnuhúsnæði og að bankinn myndi taka þátt í innviðakostnaði á árinu 2022. Þetta samkomulag var svo endurskoðað í janúar síðastliðnum þar sem framlag til verkefnisins átti að aukast og greiðslum yrði flýtt.
Stuttu seinna var Blikastaðalandið sett í söluferli.
Vilja grynnka á eigin fé og koma því til hluthafa
Fyrir liggur að hagnaður bankanna þriggja hefur verið að aukast umtalsvert sem hlutfall af veltu og að hann er margfaldur meðalhagnaður fyrirtækja sem standa í efnislegri verðmætasköpun í hagkerfinu.
Bankarnir verja sig oft með því að vísa í að ávöxtun þeirra á eigin fé sé síðri en í nágrannalöndunum. Nú þegar er búið að sýna fram á það hér að slíkt er þvæla. Þess utan halda íslensku bankarnir á meiru eigin fé en nágrannarnir, svo við lendum nú ekki aftur í hruni og þeir geti staðið af sér áföll, sem þýðir að hlutfallsleg arðsemi þeirra umfram aðra er enn áhugaverðari.
Talsmenn stóru bankanna hafa kvartað sáran yfir því að eiginfjárkröfurnar hér séu miklu hærri en úti í hinum stóra heimi. Þeir vilja grynnka á því um tugi milljarða króna með enn meiri arðgreiðslum eða uppkaupum á eigin bréfum og um leið bæta stöðu sína til að sýna enn meiri arðsemi á eigin fé.
Best er að setja þetta upp sem dæmi. Nú er eigið féð sem Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki eru að ná 13,2 til 16,3 prósenta arðsemi á samtals um 774 milljarðar króna. Ef þeir myndu greiða 100 milljarða króna af því til hluthafa en hagnaður þeirra myndi ekkert dragast saman væri arðsemin eðlilega hlutfallslega miklu meiri. Allir vinna, það er ef allir eru hluthafar eða stjórnendur í banka.
Það er ekki grátlega erfitt að vera banki á Íslandi
Það þarf ekki að efast um það í eina sekúndu að stóru bankarnir þrír hafa vel efni á að greiða meira í samneysluna í gegnum þá smávægilegu hækkun á bankaskatti sem boðuð hefur verið. Þeir eru að fara að hagnast um yfir 100 milljarða króna í ár, átta af hverjum tíu krónum sem þeir taka inn í hreinar tekjur eru vegna vaxta, vaxtamunur þeirra er sífellt að aukast og er miklu meiri en í samanburðarlöndum.
Svo eru þeir allir að græða vel umfram markmið, sem má alveg taka umræðu um hvort séu allt of há í ljósi þess að einu viðskiptavinir þeirra eru meira og minna íslensk heimili og fyrirtæki. Þurfa fyrirtæki sem keppa á fákeppnismarkaði í örríki, sem voru þar fyrir utan búin til með handafli hins opinbera eftir að fyrirrennarar þeirra settu þjóðina nánast á hausinn, að græða svona mikið á því að taka við peningunum okkar og lána okkur þá aftur? Svarið er nei og það verður fylgst náið með því hvort að tilraunir verði gerðar til þess.
Það má vel taka umræðu um það með tíð og tíma hvort það eigi að haga skattlagningu á íslenskt bankakerfi með öðrum hætti en með því að leggja skatt á skuldir þeirra. Það mætti til að mynda tekjutengja þá. Það er hins vegar verkefni framtíðar. Nú liggur fyrir brýn þörf á auknum tekjum frá breiðustu bökunum í samneysluna til að ná hallalausum fjárlögum á sama tíma og Ísland er lagað eftir innviðaskuldafyllerí, óráðsíu og getuleysi síðustu ríkisstjórnar.
Það þarf enginn að vorkenna íslenskum bönkum eða stjórnendum þeirra fyrir að taka þátt í verkefni.



