Fyrst vil ég, vegna yfirlýstra áhyggja frá súrasta hægrinu, tiltaka að ég hef að fullu jafnað mig, enda jafnaðarmaður með mikið jafnaðargeð. Ég skil reyndar ekki á hverju ég átti að jafna mig þar sem ég á í engum vandræðum með að sætta mig við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu. Ólíkt nei-hliðinni þá rak já-hliðin líka heiðarlega kosningabaráttu byggða á staðreyndum og gagnsæi á meðan þeir sem stýrðu hinn hliðinni lögðu alla áherslu á að hræða líftóruna úr þjóðinni með lygum um Evrópuher, sæstrengi, yfirgengilegan kostnað og flutning á yfirráðum yfir auðlindum.

Sá tæpi helmingur þjóðarinnar sem kaus já mun seint gleyma þessum ofsalega fjármögnuðu lygum og eitthvað segir mér að margir sem sögðu nei muni líka hugsa þessum sjálfkrýndu greifum og greifynjum landsins sem hönnuðu plottið og borguðu brúsann þegjandi þörfina í framtíðinni. Það sést ágætlega á því að enginn flokkur hefur bætt við sig meira fylgi síðan að Evrópuumræðan fór á flug og fram til dagsins í dag en Samfylkingin.

Þótt ég sé jafnaður á alla kanta þá get ég hins vegar ekki lofað Diljá Mist Einarsdóttur né öðrum að stytta greinarnar mínar, jafnvel þótt henni þyki erfitt að ná utan um slíka lengd. Lengdin er auðvitað ekki sjálfstætt markmið en mig langar að geta farið á dýptina í efni og samhengi á þessum vettvangi. Það skilar sér svona. Helstu aðdáendur frelsisins geta þó huggað sig við að áskriftin er val- og gjaldfrjáls. Áhugasamir geta því skráð sig óhræddir hér að neðan:

Án þess að lengja þennan inngang of mikið, svo ég týni nú ekki lesþreyttum hægrimönnum áður en meginviðfang vikunnar hefst, þá vil ég líka óska þess að þau fari að jafna sig á valdmissisgremjunni. Það fer ekki fram hjá neinum að það er erfitt fyrir flokk og fólk sem telur sig eiga hefðarrétt á því að stýra Íslandi að sjá samfélagið halla sér fast í jafnaðarátt og hafna þeim, réttilega, sem stjórnmálaafli sem hægt sé að taka alvarlega.

Yfirdrættir og loftkastalar

Líkt og þekkt er orðið þá lagði síðasta ríkisstjórn alla áherslu á að skófla peningum úr ríkissjóði, helst á staði þar sem það var ekki endilega þörf á þeim og án þess að afla tekna til að standa undir þeim útgjöldum. Þetta var sýnilegast í alls kyns skattaafsláttum, -glufum og styrkjum sem voru búnir til í kringum kórónuveirufaraldurinn og svo látnir halda sér löngu eftir að sá faraldur var yfirstaðinn.

Annað sem einkenndi þá ríkisstjórn voru gúmmítékkar. Hún lofaði ítrekað alls kyns fyrir alla án þess að gera neinar ráðstafanir til að afla tekna til að geta það. Allt var einfaldlega rekið á yfirdrætti og loftköstulum.

Örfáum dögum fyrir síðustu kosningar sagðist Ásmundur Einar Daðason hafa opnað nýtt meðferðarheimili fyrir börn og ungilnga. Það reyndist loftkastali enda húsnæðið langt í frá tilbúið. Þessi leiksýning hefur síðar orðið að táknmynd Framsóknar-stjórnmála síðustu ára. Mynd: Stjórnarráðið

Sýnilegast var þetta í samgöngumálum, þar sem tekjur sem aflað var af notendum vega hrundu og stóðu hvorki undir vetrarþjónustu, viðhaldi né nýframkvæmdum. Til að mæta þessu var hannað hið svokallaða kílómetragjald, sem gengur út á að borgað sé eftir notkun, og frumvarp um innleiðingu þess lagt fram. Kyrrstöðustjórnina skorti hins vegar getu og festu til að klára málið og því féll það í skaut þeirrar sem tók við í desember 2024 að gera það, reyndar í mun hægari kostnaðartakti en fyrri áform gerðu ráð fyrir.

Ástæða þess að ég er að rifja þetta upp er að allt ofangreint var til umfjöllunar í afar áhugaverðu minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi efnahags- og viðskiptanefnd fyrir nokkrum dögum.

Skattbyrði efsta tekjuhópsins lækkuð mest

Í minnisblaðinu kemur svart á hvítu fram að frá 2021 til 2024, á seinna kjörtímabili ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, lækkaði skattbyrði efstu tekjutíundar landsmanna allra mest í prósentum talið. Við lok þess tímabils var skattbyrði þeirra tíu prósent landsmanna sú lægsta sem hún hafði verið í áratug.

Skattarnir voru lækkaðir langmest á þá sem þénuðu og áttu langmest. Meltið það aðeins.

Nú var það þannig hjá þeirri ríkisstjórn að hún lagði sig fram við að láta tekjur ríkissjóðs ekki duga fyrir útgjöldum. Þess vegna nemur halli ríkissjóðs á tæpum áratug 866 milljörðum króna og það þurfti nýja ríkisstjórn skipaða fólki sem hugsar ekki bara í kreddum og Moggafyrirsögnum til að skila fjárlagafrumvarpi af sér þar sem hallaleysi er loksins náð á ný.

Þessi Liz Truss-hagfræði Sjálfstæðisflokksins, sem stýrði meira og minna fjármála- og efnahagsmálaráðuneytinu, var í fullum takti við brauðmolakenningarpólitík síðustu ríkisstjórnar. Að lækka álögur á hina ríkustu og sannfæra hina um að það sem hrynur af veisluborðinu dugi þeim til aukinnar lífsgleði.

Liz Truss er skoðanasystir Jens Garðars Helgasonar sem tókst næstum því að setja breska ríkið á hausinn á örfáum dögum sínum á forsætisráðherrastóli.Hún er nú blanda af pólitískum brandara og viðvarandi víti til varnaðar. Mynd: Skjáskot

Á meðal þeirra ákvarðana síðustu ríkisstjórnar sem skiluðu þessari niðurstöðu var lögfesting á árlegri hækkun persónuafsláttar og þrepamarka um verðbólgu að viðbættu eins prósents framleiðniviðmiði. Þetta hljómar flókið en snýst einfaldlega um að innleiða sjálfvirka skattalækkun sem skilar sem flestum krónum í vasann á þeim sem áttu flestar fyrir.

Svona sjálfvirkar skattalækkanir verða ekki síður athyglisverðar þegar hlustað er á harmavæl hægrisins á þingi yfir þeirri ákvörðun að láta lífeyri fylgja launum og tryggja þar með kjarabætur til tekjulægsta fólks landsins.

Þetta er sérstaklega athyglisvert vegna þess að reglan um sjálfvirka hækkun skattþrepa, sem skilaði efstu tekjutíundinni langmestu, var ekki í takti við raunveruleikann. Hækkunin var tvöfalt meiri en það sem þjóðhagsreikningar sýndu. Þessu verður kippt í liðinn í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.

Tíund tók til sín 80 prósent fjármagnstekna

Minnisblaðið góða tekur líka saman afar gagnlegar upplýsingar um fjármagnstekjur. Það eru tekjur vegna arðs, söluhagnaðar af verðbréfum, leigutekna af lausafé, útleigu fasteigna eða vaxta af innlánum. Í því kemur fram að þær fjölskyldur sem eru með tíu prósent hæstu tekjurnar greiði um 80 prósent af álögðum fjármagnstekjuskatti.

Til að setja þessa tölu í annað samhengi þá námu fjármagnstekjur landsmanna alls 355 milljörðum króna í fyrra. Af þeim fóru 284 milljarðar króna til þessara fjölskyldna sem eiga peninga til að „vinna fyrir sig“.

Þetta er líka hópur sem á þegar um 5.345 milljarða króna í eigið fé, sem er þó líka verulega vanmetin upphæð enda eru hlutabréfin og kvótinn sem hópurinn heldur á metin á nafnvirði, ekki markaðsvirði, í tölum Skattsins. Það má því mjög auðveldlega bæta mörg hundruð milljörðum króna hið minnsta við þessa upphæð.

Fjármagnstekjuskattur hérlendis er 22 prósent, sem er mun lægra hlutfall en greitt er af launum þar sem skatthlutfallið er 31,49 til 46,29 prósent eftir því hversu háar tekjurnar eru.

Við jafnaðarfólk höfum ætið verið á þeirri skoðun að þeir sem hafa meira á milli handanna eigi að geta lagt meira til samneyslunnar á meðan pólitískir andstæðingar okkar hafa fyrst og síðast það að leiðarljósi að lækka álögur á breiðu bökin og velta þeim af meiri þunga á alla hina í formi meiri skatta eða með því að vanfjármagna velferðarkerfið þannig að það skilar ekki tilgangi sínum.

Auknum jöfnuði má til að mynda ná með réttlátara skattkerfi og tilfærslum þar sem létt er undir með þeim sem minnsta hafa og gerðar auknar kröfur á þá sem eiga nóg afgangs. Með því að hækka fjármagnstekjuskatt um eitt prósent mætti, miðað við þær tekjur sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu af skattstofninum, afla rúmlega fjögurra milljarða króna. Tvö prósentustig myndu skila yfir átta milljörðum króna og þrjú á þrettánda milljarð króna. Og svo framvegis.

Vill að við lærum af ríki með mun minni lífsgæði

Þótt efnahagsstefnu hægrisins hafi verið hafnað skilmerkilega í síðustu þingkosningum þá heldur það áfram að reyna að vinna samfélagslegan skaða úr minnihluta. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins skrifaði til að mynda grein í Morgunblaðið fyrir skemmstu um hvað Ísland gæti lært af frjálshyggjutilraun Javier Milei í Argentínu. Nokkuð ljóst er af lestri greinarinnar að Jens Garðar Helgason er mikill aðdáandi argentíska keðjusagareigandans, sem hann segir að sé „kyndilberi frjálshyggjunnar í heiminum í dag, líkt og Margret Thatcher og Ronald Reagan voru á níunda og tíunda áratugnum.“ Þetta er sama Thatcher og Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt að hafi sveigt landið á alls kyns rangar brautir, breytt sameiginlegum verðmætum í gróðatækifæri fyrir fáa, einkavætt grunnþjónustu með gríðarlegum tilkostnaði fyrir almenning og í raun látið stjórn landsins í hendur sérhagsmuna.

Svarið við spurningu Jens Garðars er tiltölulega einfalt: lítið sem ekkert. Mynd: Skjáskot/Morgunblaðið

Það er auðvelt að skilja af hverju Jens Garðar, fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þýðist svona hugmyndafræði. Þar fer sami maður og vann sér það til pólitískrar frægðar að telja það „heilaga skyldu“ sína að berjast gegn því að veiðigjöld á stórútgerð yrðu leiðrétt með milljarða króna ávinningi fyrir ríkissjóð og almenning allan.

Það að leggja til að Ísland læri af Argentínu er þó í senn bernskt og pinkulítið fyndið. Þannig háttar nefnilega til að í síðustu birtu samantekt Sameinuðu þjóðanna um gæði lífskjara í heiminum var Ísland í fyrsta sæti en Argentína í sæti 47. Landsframleiðsla á mann í Argentínu er sirka 15 prósent af því sem hún er á Íslandi, skráð atvinnuleysi hér er fjögur prósent en um átta prósent þar, verðbólgan hér – sem okkur finnst allt of há – 5,9 prósent á meðan hún er 33,5 prósent í Argentínu.

Lífslíkur eru meira en fimm árum lengri á Íslandi, börn eru næstum fjórum sinnum líklegri til að búa við fátækt í Argentínu – þar sem næstum annað hvert barn býr á heimili sem nær ekki að fjármagna grunnnauðsynjar – en á Íslandi og á lista RSF yfir fjölmiðlafrelsi er Ísland í 12. sæti á meðan Argentína er í 98. sæti.

Vilja Íslendingar búa í argentínskri frjálshyggjutilraun?

Svo skulu Íslendingar líka horfa til þess sem Milei gerði með keðjusöginni sinni til að ná einhvers konar jafnvægi í ríkisrekstrinum og bera þær aðfarir saman við þá blönduðu leið aukinnar tekjuöflunar, aðallega á breiðustu bökin, og hagræðingar sem farið hefur verið til að ná slíku markmiði hér.

Milei sagaði sirka 30 prósent af kaupmætti lífeyrisþega á fyrri hluta ársins 2024, fjárfesting argentínska ríkisins hrundi um 75 prósent árið 2024 og um 27 prósent til viðbótar árið 2025 með þeim afleiðingum að niðurskurðurinn hefur bitnað á menntun, heilbrigðisþjónustu og stuðningi við fatlað fólk. Fréttastofunni Télam, sem hafði starfað frá árinu 1945, var lokað og henni breytt í ríkisrekið auglýsinga- og áróðursfyrirtæki þar sem sjálfstæð fréttaöflun var látin víkja fyrir pólitískum áróðursskilaboðum.

Javier Milei með Elon Musk og keðjusög. Mynd: Wikicommons

Amnesty hefur lýst yfir áhyggjum vegna þess að friðhelgi, tjáningarfrelsi og réttur fólks til að mótmæla fer minnkandi í Argentínu. Og Milei hefur auðvitað líka lært af Sjálfstæðisflokknum vegna þess að Milei hefur auðvitað farið í stórtækar ívilnanir til handa breiðustu bökunum þar í landi. Hann hefur lækkað eignaskatta og innleitt verulegar ívilnanir fyrir fjármagnseigendur og fasteignaeigendur. Sérstök gjöld á lúxusneyslu ýmis konar hafa verið afnumin, skattasakaruppgjöf er nú í boði fyrir áður óframtaldar eignir og reglur um skattaundanskot og uppgjör þeirra hafa verið mildaðar verulega. Svo fátt eitt sé talið til.

Það má vel vera að Jens Garðar telji mikil tækifæri fólgin í því að færa Ísland í átt að þeim mun takmarkaðri lífsgæðum sem í boði eru í Argentínu kyndilbera hugmyndafræði hans. Mér er þó til efs að það séu margir Íslendingar til sem eru sammála honum. Og er líka nokkuð viss um að flestir Argentínumenn myndu skipta við okkur um kerfi á sekúndubroti, svo lengi sem það yrði tryggt að þeir gætu haldið veðurfarinu sínu en skilið okkur áfram eftir með lægðirnar.

 

Reply

Avatar

or to participate