Fjórum dögum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar skrifaði ég grein sem birtist á Vísi og bar fyrirsögnina „Eina sem mun gerast Strax er að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að selja eignirnar ykkar“. Tilefnið var kosningastefna þess flokks og þeir hlutir sem hann ætlaði að gera strax kæmist hann til valda.

Þeir áttu það allir sameiginlegt að vera byggðir á pólitískum kreddum frekar en praktískum raunveruleika. Á baki lyginnar um að Reykjavík væri gjaldþrota ætlaði flokkur þeirra sem búa í þakíbúð íslenska tekjupýramídans að skera niður, útvista og selja almannaeignir til þess að gera borgina leiðinlegri, ómannvænni og að verri rekstrareiningu.

Allt er þetta eftir handriti Thatcherismans sem seldi Bretum á sínum tíma þá blekkingu að samfélagið myndi blómstra ef fjármagnseigendur fengju meira vald og allir hinir minna. Opinberar eignir voru seldar, verkalýðshreyfingin veikluð og almenningur látinn bera kostnaðinn af efnahagsbreytingunum, á meðan skattalækkanir á háar tekjur ýttu undir aukinn ójöfnuð.

Félagslegar leiguíbúðir voru seldar án þess að tryggja að aðrar kæmu í staðinn og þannig grafið undan húsnæðisöryggi komandi kynslóða. Arfleifðin er djúpstæður ójöfnuður og kerfi sem virka ekki lengur. Það reyndist nefnilega mun auðveldara að selja sameiginlegar eignir og brjóta niður samfélög en að byggja þau aftur upp.

Bretland dagsins í dag er enn að súpa seyðið af Margréti Thatcher og kreddunum hennar. Ef áfram fer sem horfir munu Reykvíkingar gera slíkt hið sama árum og jafnvel áratugum saman ef meirihluti Hildar Björnsdóttur kemst upp með að hrinda í verk sinni útgáfu af Thatcherismanum.

Hér er sú aðferðafræði brotin niður í skref.

Skref 1: Ljúga um stöðuna

Árum saman hefur sú lygi verið sett fram að Reykjavík rambi á barmi gjaldþrots. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrástagast á henni, fjölmiðlarnir sem ganga erinda flokksins hafa skrifað hundruð greina og pistla um hana, ríkisstyrkta hægrihugveitan Viðskiptaráð hefur lagt sitt lóð á vogarskálarnar og aðrir lobbíistar fylgt í kjölfarið.

Lygin gekk líka í aðra átt, að þau sveitarfélög sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrði á höfuðborgarsvæðinu væru betur rekin og að Reykjavík ætti að horfa til þeirra. Sveitarfélaganna sem hafa sérstaklega skorið sig úr fyrir að velta kostnaði af veitingu félagslegrar þjónustu yfir á Reykjavík og neita að leggja sitt af mörkum til að byggja upp húsnæði fyrir tekjulægra fólk.

Það besta við tölur er að þær ljúga ekki. Ef horft er á þann hluta borgarsjóðs sem er fjármagnaður af skattfé og hann borinn saman við nágranna Reykjavíkur kemur í ljós skýr mynd: Reykjavík undir stjórn félagshyggjufólks var ekki bara skemmtilegasta og framsæknasta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugi, heldur líka það best rekna.

Skref 2: ljúga um eigin verk annars staðar

Reykjavík er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem getur staðið undir því að greiða skuldbindingar sínar í ár með veltufé úr rekstrinum. Öll hin þurfa að taka lán eða selja eignir til að standa undir afborgunum. Kópavogur, undir stjórn Sjálfstæðisflokks, getur rétt staðið undir helmingi skuldbindinga sinna með veltufé úr rekstrinum.

Skuldir á hvern íbúa og skuldahlutfall eru svo þær næstlægstu á höfuðborgarsvæðinu í Reykjavík. Það er öll skuldasúpan sem þarf að selja eignir upp í. En meira um það síðar.

Á fyrstu sex mánuðum ársins var halli á hvern íbúa miklu meiri á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði og í Garðabæ en í Reykjavík. Öllum þessum sveitarfélögum hefur verið stýrt eftir aðferðafræði Sjálfstæðisflokksins á síðustu árum.

Seltjarnarnes, rúmlega 4.600 manna sveitarfélag troðfullt af hátekju- og eignafólki sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað einn í áratugi, rambar í alvöru á barmi gjaldþrots. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent bæjarstjórn Seltjarnarnes bréf um að bærinn uppfylli ekki jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaga. Staðan það sem af er þessu ári er enn verri. Tap á fyrstu sex mánuðum ársins var 521 milljón króna, eða rúmlega 113 þúsund krónur á hvern íbúa. Bæjarstjórinn, sem er þegar búinn að selja allar eignir sem hægt er að selja, boðar að bilið verði mögulega brúað með því að skera niður í bókasafninu, félagsmiðstöðinni og sundlauginni. Samt ætlar Seltjarnarnes að halda útsvarinu sínu því lægsta á höfuðborgarsvæðinu.

Garðabær, sem er með næst lægsta útsvarið, tapaði fjórum sinnum meira en bærinn ætlaði á fyrstu sex mánuðum ársins 2026. Handbært fé frá rekstri var neikvætt upp á 113 milljónir króna um mitt þetta ár sem þýðir að reksturinn skilar engu fé til afborgana af lánum eða fjárfestinga í skólum, leikskólum, menningarstarfi, íþróttum eða öðru sem sveitarfélag þarf að bjóða upp á. Garðabær þarf þess í stað að ganga á sjóði, taka ný lán eða selja eignir til að eiga fyrir rekstrinum í ár. Alls hefur handbært fé frá rekstri rýrnað um 902 milljónir króna á einu ári! Þetta er sérstaklega mikið áhyggjuefni vegna þess að Garðabær seldi byggingarétti á fyrri hluta ársins fyrir 757 milljónir króna. Ef bærinn hefði ekki selt eignir hefði hann tapað 1,4 milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins.

Skuldirnar sem þarf að þjónusta eru heldur ekkert litlar, tæplega tvær milljónir króna á hvern íbúa, eða rúmlega 17 prósentum meiri en skuldir á hvern íbúa í Reykjavík.

Svona er efnahagspólitík Sjálfstæðisflokksins í framkvæmd. Þessa efnahagspólitík er verið að flytja inn til Reykjavíkur í hröðum skrefum.

Skref 3: Ára erfiðleika til að rökstyðja niðurskurð

Hildarstjórnin sem nú situr að völdum í Reykjavík, í skjóli Framsóknar og Viðreisnar, notar hálfsársuppgjör borgarinnar sem skálkaskjól fyrir hamfarir sínar gegn starfsmönnum borgarinnar og þjónustu íbúa hennar. Það er gert til að barna fullyrðingar um að hraður niðurskurður sé lífsnauðsynlegur, til að hamla nauðsynlegum fjárfestingum í almenningssamgöngum sem munu skila enn þyngri bílaumferð, útvista þjónustu og á endanum selja gríðarlega verðmætar eignir borgarinnar upp í skuldir.

Hálfsársuppgjör borgarinnar var hins vegar fínt miðað við verðbólguástand og vaxtastig. Veltufé frá rekstri var 7,9 prósent af tekjum sem er hærra hlutfall en um liðin áramót. Til samanburðar er veltufé frá rekstri í Hafnarfirði, þar sem Samfylkingin er nú loks mætt aftur til að taka til eftir Rósu Guðbjartsdóttur og félaga hennar, 0,2 prósent. Hagnaður Reykjavíkur fyrir fjármagnskostnað, skatta og afskriftir var jákvæður um 7,9 milljarða króna sem var umfram áætlun. Á mannamáli þýðir það að grunnreksturinn var í plús og í góðum málum.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur, og félagar hans hafa bent á að meirihlutinn í borginni sé að snúa öllu á hvolf í rekstrinum án þess að hafa greint með nokkrum hætti þörfina á þessum óþarflega hörkulegu aðgerðum. Mynd: SHG

Það sem dró niðurstöðuna niður, og gerði það að verkum að borgin tapaði 3,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, var annars vegar reikningsleg gjaldfærsla vegna afskrifta upp á tvo milljarða króna (meðal annars vegna hjúkrunarheimila sem færðust yfir til ríkisins), þess að umtalsverðar arðgreiðslur voru færðar yfir á síðari hluta ársins og hins vegar að fjármagnskostnaður var 1,9 milljörðum krónum umfram áætlun vegna hærri verðbólgu.

Með öðrum orðum: Meirihlutinn fiktaði í tökkunum til að mála upp mynd á fyrri hluta árs sem hann getur notað til að rökstyðja hamfarapólitíkina sína og til að geta svo stært sig af betra uppgjöri á seinni hlutanum vegna þess að þá falla arðgreiðslur verðmætra fyrirtækja til.

Skref 4: Skera niður strax

Uppsagnirnar sem þau hafa ráðist í – mestu fjöldauppsagnir hjá hinu opinbera í manna minnum – eru tilviljunarkenndar og virðast einvörðungu til þess gerðar að fæða pólitískar kreddur um að eina leiðin til að spara pening sé að reka fólk.

Þannig lagði meirihlutinn til að mynda niður rannsóknarþjónustu borgarinnar í sumar sem hafði það hlutverk að sækja alþjóðlega styrki fyrir borgina sem hlupu á hundruðum milljóna króna yfir nokkurra ára tímabil. Sú eining borgaði sig margfalt á hverju ári í krónum og aurum. Ofan á það að borgin verði nú af þessum styrkjum á næstu árum er möguleiki á því að hún standi frammi fyrir endurgreiðslukröfum vegna þegar veittra styrkja, nú þegar hún getur ekki þjónustað þegar gerða styrkjasamninga.

Það var ákveðið að leggja niður alþjóðateymi borgarinnar og loka þjónustumiðstöðvum í hverfum og færa þjónustuna þannig fjær þeim sem þurfa að sækja hana. Á meðal þeirra eru innflytjendur sem gríðarlegur efnahagslegur hagur er af inngildingu á. Því fleiri aðfluttir sem læra íslensku og verða fullir þátttakendur í íslensku samfélagskerfi, því hagkvæmara fyrir okkur öll. Bæði samfélagslega og í krónum og aurum.

Það var ákveðið að loka Virknihúsi í hagræðingarskyni. Þar er um að ræða starfsemi sem hafði hjálpað 88 manns af fjárhagsaðstoð hjá borginni á árinu 2025 og út á vinnumarkað. Árlegur ávinningur fyrir borgarsjóð vegna þessa er sirka 350 milljónir króna. Hagræðingaraðgerðin, sem fól í sér uppsögn á 5,8 stöðugildum, mun því að öllum líkindum kosta borgina miklu meira en hún hefði sparað ella. Fyrir utan þau lífsgæði sem borgararnir sem komast af bótum og inn á vinnumarkað fá vegna aukinnar virkni.

Nýjasta lotan, þar sem tugum starfsmanna var sagt upp, er svo sérkapítuli út af fyrir sig. Þar var lagt upp með að fækka þyrfti stöðugildum í miðlægri þjónustu úr 8,4 í 7,5 prósent. Engin greining eða rannsókn lá að baki þessari breytingu. Ekkert áhrifamat á því hverju störf þeirra sem verið var að reka skiluðu. Engin sérstök ástæða var fyrir því að hlutfallið þyrfti að vera 7,5 prósent. Það virðist einfaldlega hafa verið hlutfallstala sem hljómaði vel.

Skref 5: Útvista, útvista, útvista!

Það er innbyggt í Sjálfstæðisflokk dagsins í dag að hann vill útvista allri grunnþjónustu til einkaaðila sem eru reknir með arðsemiskröfu. Á landsvísu liggur fyrir að hann vill gera þetta með heilbrigðisþjónustu, menntakerfið og allt annað sem hægt er að gera dýrara fyrir almenning en skilar pilsfaldakapítalistahirðinni sjálfvirkni í ágóða.

Þetta er þegar orðin mantra í Reykjavík. Þegar allir upplýsingafulltrúar borgarinnar voru reknir var sumum verkefnum strax útvistað en aðrir ráðnir aftur þegar meirihlutinn áttaði sig á því að hann þurfti raunverulega upplýsingafulltrúa í vinnu hjá einum fjölmennasta vinnustað landsins. Svo var skólaþrifum útvistað í sumar og gerðar tilraunir með að útvista sorphirðu.

Hvernig það sparar peninga að færa verkefni til þeirra sem selja þjónustu að viðbættri kröfu um hagnað er reikningsdæmi sem enginn hefur nokkru sinni fengið að ganga upp. Sparnaður á launaliðnum þýðir einfaldlega að kostnaðurinn við aðkeypta þjónustu rýkur upp í staðinn.

Svo til að vera sérstaklega andstyggileg þá ákvað nýi meirihlutinn að gera það eitt af sínum fyrstu verkum að hækka verð á mat til ellilífeyrisþega, sem margir hafa mjög lítið milli handanna, um 70 prósent.

Þau ætla að geyma áformin sín um að reyna að leggja niður almenna íbúðakerfið og selja mörg þúsund félagslegar íbúðir sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið, án þess að nokkuð komi í staðinn, þangað til að aðeins er liðið á kjörtímabilið. En það kemur að því líka.

Skref 6: Gera Reykjavík leiðinlega

Það að láta borgarpólitík í aðdraganda kosninga snúast um knýjandi þörf fyrir endurheimt bílastæða þegar það hafa aldrei verið jafn mörg bílastæði í miðborginni og núna, bara neðanjarðar, var ákveðið pólitískt afrek. Nú þegar verið er að hrinda þessari þvælu í framkvæmd, með því að láta bekki víkja úr nokkrum stæðum án þess að nokkur þörf sé á, þá birtist auðvitað sú mynd í hugum flestra að hér sé markvisst verið að gera Reykjavík leiðinlegri.

Þetta útivetingarsvæði fyrir utan Café Babalú á Skólavörðustíg verður fjarlægt svo hægt sé að koma fyrir tveimur viðbótar bílastæðum. Mynd: Skjáskot/Vísir

Tökum dæmi af stæðinu fyrir framan Kalda bar. Þar hafa verið bekkir sem hægt er að sitja á og njóta veiga barsins. Þeir hafa verið gríðarlega vel nýttir og búa til stemmningu í götunni. Þeir hafa verið látnir víkja svo hægt sé að vera með bílastæði beint fyrir utan Kalda. Hver þarf að leggja beint fyrir utan bar þegar það má ekki einu sinni keyra eftir að búið er að kaupa þjónustuna sem hann býður upp á?

Það er samt eins og þessi meirihluti hafi bara runnið á leiðindalyktina. Hann ákvað að afnema stuðning við fimmtán menningarhópa í formi húsnæðis á sanngjörnu leiguverði. Hann ætlar að reyna að einkavæða Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, með selalaug og öllu, þannig að veruleikinn verði eins og þáttur í Eurogarðinum með Jóni Gnarr.

Tillaga meirihlutans um að fækka útibúum bókasafna borgarinnar í hagræðingarskyni á sama tíma og lestri barna hrakar fékk svo þá meðferð sem hún átti skilið hjá almenningi. Afleiðingin varð sú að fólkið sem sakaði aðra um að geta ekki lesið sér til gagns hrökklaðist frá eigin hugmynd og yfir í gaslýsingu um að það hafi meint eitthvað allt annað en það skrifaði á tillögublaðið.

Skref 7: Selja eignirnar okkar

Allt snýst þetta svo um að, á endanum, að selja eignir borgarbúa svo aðrir en þeir geti hagnast á þeim en við sem greiddum fyrir uppbyggingu þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið skýr með að hann ætli sér að selja mikilvæg fyrirtæki úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur og á landsvísu hefur flokkurinn boðað að hann vilji selja stóra hluti í Rarik og Landsneti á milli þess sem hann dreymir um að selja Landsbankann og risahlut í Isavia.

Flokkurinn vill líka selja bílastæðahús borgarinnar, sem kosta í dag einn þriðja eða einn fjórða af því sem kostar að leggja í slík hús í einkaeigu, til aðila sem vilja græða á útleigu bílastæða. Svo vilja þau selja Malbikunarstöðina Höfða sem sér um flestar malbikunarframkvæmdir í Reykjavík, tryggir borginni besta mögulega verð og tryggir virka samkeppni á þeim markaði.

Nú er þetta einkavæðingarferli hafið með samþykkt um að hefja söluferli á Ljósleiðaranum. Til að fólk átti sig á því þá er um að ræða fyrirtæki sem er grunninnviður í samfélaginu og sem er stór leikandi á tveggja fyrirtækja markaði. Hitt fyrirtækið er Míla, sem Síminn seldi til franskra fjárfesta fyrir nokkrum árum. Ef Ljósleiðarinn verður seldur til erlendra aðila líka þá mun allt ljósleiðaranetið á Íslandi, sem var að hluta til byggt upp á kostnað almennings, komast í erlenda eigu.

Jafnvel þótt selt verði til innlendra aðila liggur fyrir að það samkeppnislega aðhald sem fylgir opinberu eignarhaldi verður fyrir bí og allar líkur eru á að neytendur verði látnir greiða fyrir arðsemiskröfur nýrra eigenda með hærra verði. Það eru því ríkir almannahagsmunir undir í málinu.

Það þarf ekki að hlusta lengi á Hildi Björnsdóttur til að átta sig á því að Ljósleiðarasalan er bara fyrsta skrefið í að breyta mikilvægustu innviðafyrirtækjum okkar í einkarekin gróðafyrirtæki með þeim afleiðingum að verð mun hækka, hagnaður fari til fárra einkaaðila í stað þess að fara í samfélagslega uppbyggingu og yfirráð yfir nauðsynlegri fjárfestingu og ákvörðun um hvert orka er seld fer frá fulltrúum almennings til fulltrúa sérhagsmuna.

Afleiðing: Verri Reykjavík fyrir okkur öll

Það á og má rýna rekstur Reykjavíkur. Það er alltaf hægt að gera betur í meðferð á almannafé og eftir þann mikla vöxt sem Reykjavík hefur gengið í gegnum síðustu ár þá liggur fyrir að það þarf reglulega að stilla fyrirferð borgarinnar af. Það verður þó að gera á bakinu á vitrænni þarfagreiningu og með almannahag að leiðarljósi.

Í landsmálunum hefur til að mynda tekist mjög vel að vinda ofan af óráðsíu síðustu tveggja kjörtímabila með ábyrgðum ákvörðunum sem fela í sér sambland af hagræðingu og nýrri tekjuöflun svo jafnvægi ríki í rekstrinum eftir 866 milljarða króna yfirdrátt sem safnað var upp vegna ákvarðana síðustu ríkisstjórnar. Þar stendur til að mynda yfir það verkefni að fækka ríkisstarfsmönnum um eitt prósent. Sú vegferð byggir hins vegar á vönduðum undirbúningi og störfunum er fyrst og síðast fækkað í gegnum starfsmannaveltu yfir lengra tímabil en nokkrar vikur.

Fyrir hægrifólk sem telur að lífið sé bara hagsmunabarátta einstaklinga og hópa um að sanka að sér eins miklum efnislegum verðmætum og hægt er á sem skemmstum tíma, en trúir ekki á það að það sé til neitt sem heitir samfélag, þá eru uppsagnir á fólki hins vegar eins og keppnisíþrótt. Því fleiri sem þau geta rekið, á sem andstyggilegastan máta, því fleiri stig fá þau hjá hægri-hlaðvarpstrúðalestinni eða á næstu pilsfaldakapítalistauppskeruhátíð á Kjarval.

Þessi pólitíski nýfrjálshyggju-trúarofsi mun að óbreyttu skila okkur Reykjavík sem er ljótari, leiðinlegri, ójafnari, virkar verr og lætur okkur borga meira fyrir þjónustu vegna þess að það er búið að útvista henni eða selja gullgæsirnar.

Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir það.

Reply

Avatar

or to participate