Í vikunni vakti athygli þegar þingmaður sem farið hafði í framboð fyrir Viðreisn, samþykkt stjórnarsáttmála, greitt atkvæði með samgönguáætlun, tekið þátt í að afgreiða fyrstu hallalausu fjárlögin í níu ár úr þingflokki sínum og barðist fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið ákvað að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Í langri færslu á samfélagsmiðlum virtist hann gera það vegna þess að það þarf að afla tekna til að reka ríkissjóð, og honum finnst erfitt að afla tekna. Ekkert kom hins vegar fram um hvort innlimun hans fæli í sér að flokkurinn væri nú orðin opinn í báða enda í Evrópumálum.
Í sömu færslu var hins vegar lýst yfir vonbrigðum með að ekki væri ráðist í stórfelldar útgjaldaaukningar, væntanlega án þessara tekna. Í ljósi þess að viðkomandi vill gera alls konar fyrir marga án þess að afla neinna tekna fer vel á því að hann hafi gengið í Sjálfstæðisflokkinn sem er með slíka efnahagsstefnu sem hornstein tilveru sinnar.
Rökstuðningurinn fyrir inngöngu 28 ára gamals þingmanns í Sjálfstæðisflokkinn fólst aðallega í öðrum inngöngum, í NATO fyrir 77 árum og í EES fjórum árum áður en hann fæddist. Já, og svo er hann skyndilega ofsahrifinn af fiskveiðistjórnunarkerfinu og því er heppilegt að ganga inn í stjórnmálaarm hagsmunagæslusamtaka þeirra sem hagnast mest á því.
Flokkurinn sem ekki er hægt að taka alvarlega
Það muna sennilega flestir eftir því þegar Sjálfstæðisflokkurinn leiddi fyrirstöðu gegn því að veiðigjöld yrðu hækkuð. Það gerði hann að forskrift Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og nýjasti þingmaður flokksins var virkur í að setja fram skoðanir sem eru á skjön við nýfundna ást hans á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þá var sett Íslandsmet í málþófi og Evrópu- og Ólympíumet í innistæðulausum yfirlýsingum um að sjávarútvegur, landsbyggð og nánast nútímasamfélagsgerð myndi leggjast af ef nokkrar fjölskyldur og eitt kaupfélag sem eiga mörg hundruð milljarða króna í hreinni eign myndu þurfa að greiða aðeins meira fyrir að fá að nýta fiskveiðiauðlind í eigu þjóðar. Um þetta fjallaði ég í síðustu viku og um það er hægt að lesa hér að neðan.
Umræddur flokkur tryggði það svo kyrfilega í sessi að það sé ekki hægt að taka hann alvarlega þegar hann spilaði út nýjum pólitískum efnahagsáherslum sínum við viðhöfn í vor. Þær snerust um að lækka skatta upp á 140 milljarða króna á ári, að uppistöðu á breiðustu bökin í samfélaginu. Hann vill opna allar skattaglufurnar fyrir ríkustu landsmennina sem sitjandi ríkisstjórn hefur lokað upp á ný, lækka fjármagnstekjuskatt á þá sem láta peninga vinna fyrir sig og afnema erfðafjárskatt sem myndi nýtast langefnuðustu íbúum landsins langmest og skapa erfðabundið forréttindakerfi.
Útvista átti velferðarkerfinu að mestu og selja allar helstu verðmætu eignir ríkissjóðs, að öllu eða miklu leyti, svo hægt yrði að borga fyrir skattalækkanirnar í örfá ár.
Svo fátt eitt sé nefnt.
Þjóðin studdi leiðréttingu veiðigjalda
Blessunarlega hefur afstaða þjóðarinnar til stjórnmála Sjálfstæðisflokksins og fylgitungla hans verið mæld reglulega. Það var auðvitað gert í síðustu kosningum þegar þáverandi ríkisstjórnarflokkum var hafnað með afgerandi hætti og flokkar sem vinna að því að laga Ísland tóku við.
Það var líka gert í fyrrasumar, eftir að veiðigjaldafrumvarpið var samþykkt og afgreitt. Þá kom í ljós að 65 prósent landsmanna voru hlynnt því að leiðrétta veiðigjöld en 24 prósent voru andvíg og um ellefu prósent höfðu ekki á því ákveðna skoðun. Afstaðan var eftir stjórnarlínum: þeir sem studdu ríkisstjórnarflokkana voru fylgjandi frumvarpinu en þeir sem studdu minnihlutaflokkana voru að uppistöðu á móti. Ríkisstjórnarflokkarnir komu vel undan þeirri rimmu, juku við fylgi sitt og stuðningur við stjórnina var með hæsta móti.
Engar af hrakspám stjórnarandstöðuflokkanna um afleiðingar veiðigjaldahækkunar rættust. Raunar hefur íslenskur sjávarútvegur aldrei staðið betur. Það stefnir í að árið 2026 verði metár.
Markaðsvirði þriggja skráðu útgerðanna hefur aukist um 200 milljarða króna, fjárfestingar í skipum, tækni, vinnslu, þróun og óskyldum greinum nema tugum milljarða króna á rúmu ári og í stað þess að það sé verið að stilla „lokað“ skiltum upp á skrifstofum útgerða eru þær að gefa út jákvæðar afkomuviðvaranir vegna þess að ágóði þeirra eftir greiðslu allra skatta og gjalda er miklu meiri en stjórnendur hefði dreymt um í byrjun árs.
Baðlónaafkoma ætlar sér að „taka kipp á næsta ári“
Nýverið voru gerðar kannanir á ýmsum öðrum pólitískum áhugamálum Sjálfstæðisflokksins. Fyrst skal nefna álagningu svokallaðs náttúru- og innviðagjalds, sem formaður Sjálfstæðisflokksins hefur heitið því að beita sér fyrir á Alþingi að fallið verði frá og reyndar alltaf hengt saman við andstöðu við afnám skattaafsláttar til baðlóna.
Ef við dveljum stuttlega við baðlónin þá á að færa virðisaukaskatt sem viðskiptavinir þeirra greiða úr neðra þrepi í það efra. Allir stjórnarandstöðuflokkarnir ætla að leggjast kylliflatir gegn þessari breytingu. Um er að ræða lúxusvöru sem ferðamenn nýta sér að langmestu leyti. Langstærsti baðlónaleikandinn er Bláa lónið, sem á önnur lón út um allt land, stendur að uppbyggingu enn fleiri og verður bráðlega skráð á markað verðmetið á 84 milljarða króna. Það vekur athygli að eftir að tilkynnt var um áform um afnám skattaafsláttar á baðlón þá réðst Bláa lónið í aukin kaup á lónum á Norður- og Austurlandi. Öll eru þau kölluð „stefnumótandi fjárfestingar í vaxandi áfangastöðum“ í fjárfestakynningu Bláa lónsins.

Fjallað er um þá sókn sem framundan er hjá ýmsum baðlónum í eigu Bláa lónsins í fjárfestakynningu sem var birt í þessum mánuði. Fyrirtækið jók hlut sinn í þeim öllum eftir að afnám afsláttar á virðisaukaskatti á baðlón var opinberaður. Mynd: Bláa lónið
Morgunblaðið birti afar athyglisverða umfjöllun um útboð Bláa lónsins í lok síðustu viku. Fyrirsögnin þar var „Afkoman mun taka kipp á næsta ári“ og rætt var við starfsmann bankans sem sá um útboðið sem sagði að „þökk sé betri rekstri, auknum fjárfestingum og kaupum á öðrum félögum er gert ráð fyrir að afkoma samstæðunnar muni aukast um það bil helming strax á næsta ári og enn meira á næstu árum þegar full samlegð raungerist og Þjórsárdalur bætist við sem nýtt flaggskip samstæðu Bláa lónsins.“

Frétt úr Morgunblaðinu í síðustu viku þar sem sérstaklega var talað um samlegðaráhrif vegna uppkaupa Bláa lónsins í öðrum lónum. Mynd: Morgunblaðið
Annar stór leikandi á baðlónamarkaðnum er Sky Lagoon. Eigendur þess hafa fengið næstum fjóra milljarða króna í arð á þremur árum og fullt í viðbót í gegnum fasteignafélag sem heldur á eignum lónsins en rukkar systurfélagið um 621 milljón krónur í leigu á ári. Mörg minni lón eru líka í mjög arðbærum rekstri, til dæmis Gamla laugin á Flúðum, sem var með hagnað sem útleggst sem 38 prósent af tekjum í fyrra.
Þjóðin styður innviðagjald á ferðamenn
En aftur að könnunum á afstöðu Íslendinga til stefnumála Sjálfstæðisflokksins. Í einni slíkri sem Gallup vann á síðustu dögum var spurt um afstöðu til útfærslu á náttúru- og innviðagjaldi fyrir aðgang að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum sem mælt var fyrir á þingi í liðinni viku. Gjaldið er ætlað erlendum ferðamönnum en samkvæmt tillögunni myndu allir einstaklingar 18 ára og eldri sem ekki hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða það. Gjaldið yrði 4.500 krónur yfir sumartímann og 3.000 krónur yfir vetrartímann og myndi veita aðgang að öllum þremur stöðunum í eitt ár.
Skemmst er frá því að segja að mikill meirihluti landsmanna, 62 prósent, er hlynntur þessari útfærslu af gjaldinu en einungis tæpur fjórðungur er á móti. Rúmlega þrettán prósent hafa ekki myndað sér skoðun og ef einungis eru taldir þeir sem eru með skýra afstöðu þá kemur í ljós að 72 prósent vilja gjaldið en 28 prósent eru á móti því.

Þessi útgáfa af gjaldtökunni nýtur afgerandi stuðnings út um allt land, hjá kjósendum af öllum menntunarstigum og í öllum tekjuhópum. Hún nýtur líka afgerandi stuðnings hjá kjósendum allra flokka… nema Sjálfstæðisflokksins. Innan raða hans er þó ekki afgerandi mótstaða, 53 prósent eru andvíg, 35 prósent fylgjandi og tólf prósent hafa ekki myndað sér skoðun.
Framsókn og Miðflokkurinn ættu að taka það alvarlega að töluvert fleiri kjósendur beggja flokka styðja fyrirhugaða gjaldtöku en eru á móti henni. Í tilfelli Miðflokks segjast næstum því tveir af hverjum þremur styðja hana en einungis 29 prósent eru á móti og helmingur kjósenda Framsóknar er sömu skoðunar á meðan einungis tæpur þriðjungur er á móti.
Borgarbúar vilja ekki selja Ljósleiðarann
Síðustu vikur hefur nýr meirihluti í Reykjavíkurborg líka ákveðið að hann ætli að selja Ljósleiðarann út úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða eitt verðmætasta innviðafyrirtæki landsins sem hefur tvöfaldað tekjur sínar á örfáum árum, nær til 80 prósent heimila landsins og um tíu þúsund fyrirtækjarýma. Það skilar mörgum milljörðum króna á ári í rekstrarhagnað og á eigið fé upp á um 14 milljarða króna.
Niðurstaða könnunar á afstöðu borgarbúa gagnvart þessari sölu, en Reykjavík er langstærsti eigandi Orkuveitu Reykjavíkur, er mjög afgerandi. Alls eru 57 prósent þeirra andvíg henni en einungis 21 prósent hlynnt. Um 22 prósent hafa ekki myndað sér skoðun á sölunni.

Samfylkingin í borginni reyndi á þriðjudag að fá samþykkta tillögu um að beina því til Alþingis að við vinnu á endurskoðun sveitarstjórnarlaga verði lögfest skilyrði um aukinn meirihluta atkvæða í sveitarstjórn, svo sem 2/3 hluta atkvæða, þegar bindandi ákvörðun er tekin um sölu eða ráðstöfun á mikilvægum innviðafyrirtækjum. Henni var hafnað.
Landsbankinn er marglaga gullgæs
Loks hefur Sjálfstæðisflokkurinn ítrekað verið að viðra þá hugmynd að selja allt hlutafé í Landsbankanum. Sú hugmynd var meðal annars sett fram í áðurnefndum efnahagstillögum sem kynntar voru í vor og forsvarsmenn flokksins hafa verið að tromma hana upp á ný undanfarna daga sem nauðsynlega fjármögnun á Borgarlínu.
Nú skulum við rifja upp að Landsbankinn hefur greitt um 246 milljarða króna í arð til ríkisins frá árinu 2013. Þeir fjármunir hafa meðal annars farið í að reka velferðarkerfi, menntakerfi, niðurgreiðslu skulda og uppbyggingu samgangna.
Þess utan er Landsbankinn með mun lægri arðsemiskröfu en hinir bankarnir á íslenska markaðnum. Það þýðir á mannamáli að hann er með hófsamari áform um gróða en þeir og virkar því eins og akkeri fyrir samkeppni í fjármálaþjónustu í landinu. Við skulum muna að eitt það fyrsta sem Íslandsbanki, sem síðasta ríkisstjórn seldi meirihlutann í, gerði eftir að hann losnaði úr ríkiseigu var að hækka arðsemiskröfuna sína verulega.
Landsbankinn á eigið fé upp á 342 milljarða króna og hagnaðist um 33 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi árs. Hin sterka eiginfjárstaða býður upp á möguleika á að greiða út sérstakar arðgreiðslur til viðbótar við þá hefðbundnu, enda eiginfjárhlutfallið vel yfir lögbundinni kröfu. Það gerðist til að mynda í ár þegar Landsbankinn greiddi eiganda sínum um 19 milljarða króna í reglulegan arð og 16 milljarða króna til viðbótar í sérstaka arðgreiðslu.
Þær kannanir sem gerðar hafa verið í gegnum tíðina á hug þjóðarinnar til sölu á ríkisbankanum, eftir endurreisn bankakerfisins, hafa verið á einu máli. Meirihluti hefur verið andvígur sölunni og sú andstaða hefur fremur vaxið en hitt. Í könnun sem gerð var 2020 voru 62 prósent andvíg sölu ríkisbanka en 19 prósent hlynnt og langflestir svarendur vildu raunar helst breyta Landsbankanum í einhverskonar samfélagsbanka.
Af öllu ofangreindu blasir því við að forysta Sjálfstæðisflokksins gengur ekki í neinum takti við íslenska þjóð og ekki einu sinni í takti við stóran hluta af eigin kjósendum.
Því má velta fyrir sér fyrir hvern flokkurinn er að reka þessa stefnu.


