Í fyrra fór fram barátta sem sagan mun dæma sem eina þá mikilvægustu í íslenskri stjórnmálasögu. Þá reis ríkisstjórn sem mynduð var til að vinna fyrir alla upp gegn pólitísku afli sem taldi sig ósigrandi og hefur þann æðsta tilgang að vinna fyrir suma og fáa. Málið snerist um leiðréttingu veiðigjalda þannig að þjóðin, eigandi auðlindar, myndi fá sanngjarna hlutdeild í arðinum sem hún skapar. Fyrirstaðan var leidd af Sjálfstæðisflokki, pólitískum armi Samtaka íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja (SFS) og öðrum lobbýistum með heimili í Borgartúninu, með dyggum stuðningi Framsóknar og Miðflokks.

Peningum var ausið í rándýrar auglýsingaherferðir sem gerðu lítið annað en að opinbera hversu aftengd fáveldisstéttin á Íslandi, og stjórnmálamennirnir sem hún á, er orðin raunveruleikanum og samfélaginu sem bjó hana til.

Hræðsluáróðurinn var yfirgengilegur. Byggðir áttu að leggjast í eyði ef lögin yrðu samþykkt. Atvinnuvegir að leggjast af. Allur fiskur yrði fluttur úr landi og enginn myndi nokkru sinni aftur fjárfesta innan íslensks sjávarútvegs. Með því að láta fjórar fjölskyldur og eitt kaupfélag, sem eiga samanlagðan auð upp á að minnsta kosti 500 milljarða króna, en sennilega miklu, miklu meira, borga aðeins meira af árlegum hagnaði sínum í samneyslu þjóðarinnar myndi Ísland hreinlega eyðileggjast.

Stórstjarna þessarar herferðar var Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og formaður SFS árin 2014–2020, sem sagði það „heilaga skyldu“ sína að berjast gegn þessu óréttlæti sem beint var að ríkasta fólki landsins. Öllu öðru átti að fórna í þessari heilögu baráttu, en það eina sem tapaðist á endanum var pólitískur trúverðugleiki Jens Garðars og ýmissa annarra stjórnmálamanna sem tóku þátt í að málþæfa þetta þjóðþrifamál í 160 tíma, og settu með því Íslandsmet.

Sótsvört mynd máluð upp

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS, fór líka mikinn. Í umsögnum sem hann skilaði inn til Alþingis sagði hann meðal annars að framlegð skipa myndi þurrkast upp ef veiðigjöld yrðu leiðrétt og að það myndi koma niður á endurnýjun skipaflotans. Í síðari umsögn var svo greint frá ákvörðun um að Síldarvinnslan „hafi ákveðið að setja frekari fjárfestingar á ís“ vegna málsins.

SFS sagði blákalt sjálft að tölur staðfestu að „rekstur myndi þyngjast mjög verulega“. Samtökin töldu líkleg viðbrögð við auknum veiðigjöldum verða hagræðingu og frekari samþjöppun, með fækkun starfa.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hélt ræðu á þingi og sagði fyrirtæki í geiranum þegar „hafa frestað ákvörðunum um uppbyggingu og framkvæmdir og fjárfestingar“.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði á sama vettvangi að ef veiðigjöld yrðu leiðrétt „þá tökum við fjárfestingagetuna af með aðgerðum eins og þessari.“

Í nefndaráliti sjálfstæðismannanna Jóns Gunnarssonar og Njáls Trausta Friðbertssonar sagði að aukin veiðigjöld „skerpi óhjákvæmilega samkeppnishæfni hennar umtalsvert“.

Í nóvember 2025 tóku hagaðilar sig saman og birtu forsíðufrétt í frídreifðu Morgunblaði um að það væri „Tekjufall í sjávarútvegi“.

Svona var stöðunni hjá helstu eigendum Morgunblaðsins lýst á forsíðu hans fyrir rúmu ári. Mynd: Skjáskot/Mbl

Inni í blaðinu voru tvær stórar umfjallanir um sama mál og leiðari þess fjallaði sömuleiðis um svartnættið sem undirstöðuatvinnuvegurinn sé að rata í. Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins, er að uppistöðu í eigu tveggja af stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins.

Hagnaður jókst um 60 prósent milli ára

Nú skulum við máta allar þessar bábiljur við veruleikann sem er 16 mánuðum eftir að frumvarpið um veiðigjöldin var samþykkt. Árlega kynnir Deloitte gagnagrunn sinn um íslenskan sjávarútveg á sérstökum Sjávarútvegsdegi. Hann fór fram í byrjun mánaðar.

Þar kom fram að hagnaður geirans í fyrra var 51 milljarður króna eftir að öll gjöld og allir skattar – þar með talin veiðigjöld – höfðu verið greidd. Það er 19 milljörðum krónum meiri hagnaður en árið 2024 og aukning um 60 prósent milli ára. Tekjur á síðasta ári jukust um 50 milljarða króna milli ára, eða um tólf prósent.

Tekjur í sjávarútvegi jukust myndarlega milli ára. Hagnaðurinn jókst hins vegar miklu meira. Mynd: Deloitte

Langverðmætasta bókfærða eignin eru aflaheimildir, kvótinn. Í bókum útgerða eru þær sagðar vera 494 milljarða króna virði og eru því rétt um helmingur allra eigna sem útgerðarmenn telja sínar. Það liggur þó samt sem áður fyrir að í fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar. Þar segir jafnframt að úthlutun aflaheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir þeim. Samt er kvótinn í bókum útgerða skráður sem eign þeirra sem eiga þær.

Þessi tala sem útgerðarmenn setja á kvótann sem þeir halda á er þó augljóslega ekki raunvirði aflaheimilda í íslenskri lögsögu. Raunvirðið, yrði kvótinn seldur á markaðsvirði, er sennilega nær 1.200 milljörðum króna hið minnsta, eða vel rúmlega tvöföld þessi upphæð.

Aflaheimildir (kvóti) eru rétt um helmingur bókfærðra eigna íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Mynd: Deloitte

Um síðustu áramót var eigið fé sjávarútvegsfyrirtækjanna alls 504 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið meira en 50 prósent. Þarna verður að staldra við þá staðreynd að á árunum 2021 til 2025 tóku eigendur útgerða samtals 96 milljarða króna út úr rekstrinum sem arð. Ef horft er lengra aftur, til 2015, þá tóku þeir samtals rétt um 180 milljarða króna út úr rekstrinum í arð.

Eru að eignast flest annað

Þennan auð hafa stærstu aðilarnir í sjávarútvegi notað til að kaupa upp margt annað í íslensku samfélagi. Um það er auðvitað enginn vafi.

Þar er bæði um að ræða fyrirtæki í óskyldum rekstri en líka minni útgerðir sem héldu á kvóta. Því hafa yfirráð yfir fákeppnismörkuðum á Íslandi sem heimili landsins hafa ekkert val um að versla við og nýting á þjóðareigninni í hafinu færst á sífellt færri hendur.

Í maí á þessu ári var birt skýrsla á Alþingi sem sýndi að 20 stærstu útgerðir landsins og eigendur þeirra eigi eignir sem metnar voru á 406-441 milljarð króna í öðrum fyrirtækjum. Það kom líka fram að þessar 20 útgerðir hafi eignast 60 prósent af þessum eignum á áratug. Eignir hafa þjappast saman inni í þessum samstæðum eða eigendum þeirra og sérstaklega þeim sem eiga mest. Þannig áttu þrír stærstu eigendahóparnir meira en helming af öðrum eignum útgerða.

Þar fyrir utan eru útgerðirnar í samantektinni alls ekki 20 í raun. Sumar þeirra eru að fullu í eigu annarra. Þá teiknast upp sú mynd að fjórar til fimm blokkir tengdra aðila halda á miklum meirihluta af kvóta á Íslandi og eru flestar orðnar afar fyrirferðarmiklar í öðrum geirum en sjávarútvegi.

Auk þess vantaði augljóslega stór púsl í heildarmyndina til að teikna upp skýrt yfirlit yfir eignir stóreignafjölskyldna í útgerð í óskráðum eignum. Það vantar eignir upp á hið minnsta tugi, ef ekki hundruð, milljarða króna til að úttektin geti talist tæmandi.

Upp um 412 milljónir króna á dag

Í kynningu Deloitte er bent á, með hógværum hætti, að vísbendingar séu um áframhaldandi tekjuvöxt á árinu 2026. Þar er stuðst við hálfsársuppgjör Brims, Ísfélagsins og Síldarvinnslunnar, þeirra þriggja stórútgerða sem skráðar eru á íslenskan hlutabréfamarkað.

Það stefnir í að árið 2026, það fyrsta sem útgerðir greiða aukin veiðigjöld, verði algjört metár í geiranum. Mynd: Deloitte

Ég segi með hógværum hætti vegna þess að samkvæmt glærunni jukust tekjur þeirra um 26 prósent milli tímabila og hagnaður fyrirtækjanna þriggja á sex mánuðum var rúmlega tvisvar sinnum meiri í ár en á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn rúmlega tvöfaldaðist!

Næst skulum við horfa á markaðsvirði þessara þriggja fyrirtækja. Það var samanlagt um 329 milljarðar króna þann 14. júlí í fyrra, þegar veiðigjöldin voru afgreidd á þingi. Um miðja þessa viku var það um 529 milljarðar króna og hafði því aukist um 200 milljarða króna eftir að veiðigjöldin áttu að setja sjávarútveginn, landsbyggðina og mögulega heiminn allan á hliðina. Þegar ég reiknaði stöðuna út á miðvikudag kom í ljós að á hverjum þeirra 485 daga sem liðnir voru frá veiðigjaldaaukningunni hræðilegu höfðu Brim, Ísfélagið og Síldarvinnslan samtals hækkað í verði um 412 milljónir króna.

Til að setja þetta í annað samhengi þá má benda á að þeir tveir aðilar sem eiga stærstan hlut í Síldarvinnslunni, Samherji og Gjögurs-fólkið í gegnum fjárfestingarfélagið Kjálkanes, hafa aukið virði hluta sinn úr 60 milljörðum króna í 102,2 milljarða króna. Þau eiga því eign í þessari einu útgerð sem er 42,2 milljörðum krónum meira virði nú en í fyrrasumar. Útgerðarfélag Reykjavíkur, í eigu Guðmundar Kristjánssonar, hefur aukið virði hlutar síns í Brim um 27 milljarða króna og Guðbjörg Matthíasdóttir og börn hennar hafa aukið virði hlutar síns í Ísfélaginu um 19 milljarða króna. Samanlagt hafa þessir aðilar, sem eru örfáir einstaklingar og eiga samanlagt tæplega helming í fyrirtækjunum þremur, aukið virði hlutafjár síns um 88 milljarða króna á 485 dögum.

Methagnaður, jákvæð aðvörun og nýr togari

Í vikunni gaf Síldarvinnslan svo út jákvæða afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs sem væntanlegt er á næstu vikum. Á mannamáli þýðir það að þessi stórútgerð er að græða miklu meira í ár en hún áætlaði. Rekstrarhagnaðurinn var þegar orðinn meiri á þessu ári í september en hann var allt síðasta ár og meiri en hófsömustu áætlanir fyrir árið 2026 gerðu ráð fyrir allt árið. Nú stefnir hann í að verða allt að 140 milljónir evra, sirka 20 milljarðar króna, sem er um 37 prósentum meira en í fyrra. Hér er auðvitað um methagnað að ræða.

Það sem vakti enn meiri athygli var tilkynning Síldarvinnslunnar um kaup á glænýjum frystitogara frá Tyrklandi. Verðið kom ekki fram í tilkynningu en ljóst er að það hleypur á mörgum milljörðum króna. Það er skiljanlegt að Síldarvinnslan noti það ótrúlega magn af erlendum gjaldeyri sem orðið hefur til í rekstrinum til að kaupa ný skip, sérstaklega í ljósi þess að íslenska krónan er sögulega sterk sem þýðir að það er mun ódýrara en oftast að versla í útlöndum.

Fiskverð er í hæstu hæðum um þessar mundir sem hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á hagnað stórútgerða. Mynd: Deloitte

Fullyrðingar Gunnþórs forstjóra um að framlegð Síldarvinnslunnar myndi þurrkast upp, að aukin veiðigjöld myndu koma niður á endurnýjun skipaflota og setja frekari fjárfestingar á ís reyndust því innistæðulausar.

Sennilega aldrei fjárfest meira

Það má raunar segja um fleiri slíkar. Stóru leikendurnir í sjávarútvegi hafa verið duglegir að fjárfesta í alls kyns hlutum síðastliðna rúma eina og hálfa árið. Brim keypti til að mynda Lýsi á um 20 milljarða króna, Ísfélagið fjárfesti fyrir 4,4 milljarða króna í Austur Holding, stærsta eiganda fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur, í formi eiginfjárframlags og breytilegra lána og Samherji hefur dælt milljörðum króna í uppbyggingu á Eldisgarði sínum á Reykjanesi.

Félag í eigu Guðmundar í Brim keypti líka allt hlutafé í útgerðinni Þórsnesi í Stykkishólmi ásamt skipi, búnaði og kvóta í sumar, sjávarútvegsarmur Kaupfélags Skagfirðinga eyddi nokkur hundruð milljónum króna í hluti í Iceland Seafood í október í fyrra. Bæði Eskja og dótturfélag Skinneyjar-Þinganess fjárfestu til að mynda í fiskeldisfyrirtækinu Kaldvík eftir að áform um leiðréttingu veiðigjalda lágu fyrir, Alda Seafood, sem áður hét Samherji Holding og heldur utan um erlenda starfsemi þess útgerðarrisa, pantaði tvo togara í fyrra sem eiga að afhendast á næsta ári. Samherji á Íslandi keypti svo um helming í norska framleiðslufyrirtækinu Berg LipidTech AS, en það framleiðir lýsi fyrir heildsölumarkað. Síldarvinnslan bætti vel í fjárfestingu sína í eldisfyrirtækinu Arctic Fish og á nú um 36 prósent í því.

Svo hafa eigendur stórra útgerða verið að leika sér við að brenna peninga í pólitískum fjárfestingum líka. Í maí í ár, daginn eftir að ákveðið var að ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, lögðu Ísfélagsfjölskyldan, aðilar tengdir henni og Kaupfélag Skagfirðinga 600 nýjar milljónir króna inn í útgáfufélag Morgunblaðsins. Þessir peningar bættust við alla milljarðana sem sömu aðilar voru þegar búnir að setja inn í útgáfuna og fuðruðu upp til peningahimna.

Morgunblaðið brást við með því að birta meira og minna neikvæðar fréttir á forsíðu um Evrópusambandið og þá sem voru hlynntir því að fara í viðræður við það þá þrjá mánuði sem fylgdu í kjölfarið.

Þetta er langt í frá tæmandi upptalning.

Við látum ekki hræða okkur til hlýðni

Það er gott að íslenskum atvinnuvegum gangi vel. Á því högnumst við öll. Það er hins vegar líka eðlilegt að þeir greiði sitt til samneyslunnar. Hér á landi eiga flestar stórar útflutningsgreinar okkar það sameiginlegt að treysta mjög á nýtingu náttúruauðlinda í eigu allrar þjóðarinnar eða innviði og þjónustu sem hið opinbera hefur byggt upp. Þess vegna er auðlindagjald ekki bara eðlilegt heldur nauðsynlegt svo hægt sé að halda áfram uppbyggingu.

Það á sérstaklega við nú þegar ábyrg ríkisstjórn tók við af annarri sem reiddi sig á efnahagspólitík óreiðumannsins og rak sig annars vegar á yfirdrætti og hins vegar á útgáfu innistæðulausra gúmmítékka. Þau vildu lofa öllu fyrir alla en fjármögnuðu lítið sem ekkert af því og fyrir vikið sitjum við sem þjóð uppi með innviðaskuld upp á mörg hundruð milljarða króna ofan á næstum níu hundruð milljarða króna á nokkrum árum.

Síðustu tæpu tvö árin hafa farið í að laga Ísland. Að ná jafnvægi í ríkisfjármálum með því að sækja tekjur þar sem bökin eru breið, loka skattaglufum á þá sem eiga mest og þéna best, hagræða skynsamlega í ríkisrekstri, sameina stofnanir og auka vaxtatækifæri með stórhuga verkefnum.

Samhliða hefur verið unnið á innviðaskuldinni með stórauknu framlagi í viðhald vega, nýframkvæmdir, mörg hundruð ný hjúkrunarrými, fjölgun lögreglumanna, viðbyggingum við skóla, eyðingu biðlista fyrir ungmenni sem þurfa á meðferð að halda, auka framboð á viðráðanlegu húsnæði og tryggja leiðir fyrir ungt og efnaminna fólk til að komast í slíkt. Á sama tíma hefur almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækkað og aldursviðbót öryrkja verið tryggð ævilangt. Svo fátt eitt sé nefnt.

Það er vert að hafa þetta allt í huga þegar hagaðilar og stjórnmálamennirnir þeirra stíga upp til að selja okkur að allt fari til fjandans ef atvinnuvegir greiði aðeins meira til samneyslunnar. Dæmin um besta rekstrarár í sögu íslensks sjávarútvegs sem rakin eru hér að ofan, og hafa gert fólk sem átti þegar mörg hundruð milljarða króna enn ríkara þrátt fyrir aðeins hærri veiðigjöld, sýna að þetta er einfaldlega taktík úr handbók sem er ætlað að hræða okkur til hlýðni.

Sá tími er liðinn.

Reply

Avatar

or to participate