Framsóknarflokkurinn vann mjög merkilegan kosningasigur árið 2021. Flokkurinn bætti við sig verulegu fylgi, alls 6,6 prósentustigum, og varð sá næststærsti á þingi á eftir Sjálfstæðisflokknum. Þetta skilaði honum 13 þingmönnum. Kosningavaka flokksins þessa nótt var troðin, aðallega af ungum körlum. Þegar rífandi gleðin stóð sem hæst var öskrað í hátalarakerfið: „Þetta er partístofa Ásmundar Einars!“
Í sjónvarpssal á öðrum tímanum sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi formaður Framsóknar, að „ég held að lokum hafi allir komist að því að það væri sennilega bara best að kjósa Framsókn.“ Í þjóðarpúlsi Gallup sem gerður var í kjölfar kosninganna kom í ljós að flestir Íslendingar, 77 prósent, vildu Framsókn í ríkisstjórn.
Það sem var merkilegast við frammistöðu Framsóknarflokksins í þessum kosningum er að áherslur flokksins snerust eiginlega ekki um neitt. Kosningabaráttan var rekin á slagorðinu: Er ekki bara best að kjósa Framsókn? Og fyrir því féllu þúsundir kórónuveiruþreyttra kjósenda.
Undir yfirborðinu var óljós áhersla á félagshyggju og gömlu samvinnuhugsjónina sem persónugerðist í áðurnefndum Ásmundi Einari Daðasyni, sem búið var að teikna upp sem Ása barnanna.
Aðgerðarleysi og afhroð
Á þessum tíma voru risastór verkefni fram undan á hinu pólitíska sviði. Á Íslandi þurfti að móta efnahagsáætlun sem hefði það markmið að rétta við stöðu ríkisfjármála, eftir að ríkissjóður hafði verið rekinn með mörg hundruð milljarða króna halla vegna kórónuveirufaraldursins. Svo þurfti að finna jafnvægi milli þess markmiðs og nauðsynlegrar eyðslu opinberra fjármuna til að takast á við áskoranir framtíðar í gegnum opinbera fjárfestingu, til dæmis í margháttuðum innviðum og á húsnæðismarkaði.
Það þyrfti að endurskoða skatta- og millifærslukerfastefnu stjórnvalda til að mæta nýjum þörfum og afla tekna til að standa undir þjónustuhlutverki ríkis og sveitarfélaga til framtíðar.
Það þurfti að byggja upp atvinnulíf með öðruvísi áherslum og nýja tegund starfa með meiri framleiðni. Það þurfti að endurskoða kerfin utan um grunnframfærslu, sérstaklega þeirra öryrkja, lífeyrisþega og láglaunaðra einstæðinga sem voru fastir í fátækragildrum.
Það þurfti að ráðast í orkuskipti, aukna orkuöflun og stórátak í samgöngumálum. Það þurfti að styrkja stoðir heilbrigðiskerfisins enn frekar, vinna á biðlistum eftir aðgerðum og þjónustu og undirbúa það fyrir mikið viðbótarálag sem fram undan er með sífellt eldri þjóð.
Og allir stjórnmálamenn með einhvern dug vissu á þessum tímapunkti að það þyrfti að vinna að nýrri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið. Ef stjórnmálamaður ætlaði sér að hunsa að átta af hverjum tíu Íslendingum vildu grundvallarbreytingu á kerfinu og sex af hverjum tíu töldu það vega raunverulega að lýðræðinu í landinu, þá átti hann vart erindi.
Það vita flestir hvernig fór. Framsókn og hinir flokkarnir í ríkisstjórninni sem sat fram í desember 2024 leystu engin þessara verkefna. Enda stjórnin endurnýjuð utan um kyrrstöðu og völd, ekki til að þjónusta almenning og bæta samfélagið.
Því kom það ekkert sérstaklega á óvart þegar Framsóknarflokkurinn beið afhroð í síðustu þingkosningum, fékk sína verstu niðurstöðu í sögunni, tapaði átta þingmönnum og að allir ráðherrar flokksins nema einn duttu út af þingi.
Áferð umfram árangur
Meira að segja sú skýjaborg sem Framsókn lagði mesta áherslu á að selja sem kennileiti eftir kosningarnar 2021, farsældarlögin, náði að springa upp í andlitið á þeim. Kjarninn í þeim lögum er að kerfi vinni saman svo börn fái rétta þjónustu á réttum tíma, sem vitanlega er ofsalega gott og þarft markmið.
Vandamálið við farsældina var, líkt og svo oft þegar Framsókn á í hlut, að hlutirnir litu miklu betur út á glanspappír en í framkvæmd. Þetta var staðfest í úttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu farsældarlaganna, sem er þungur áfellisdómur yfir þeim pólitíkusum sem héldu um stýrið á síðasta kjörtímabili. Undirbúningur var ófullnægjandi, ávinningsmat laganna vakti óraunhæfar væntingar og ekki hafði verið greint nægilega hvaða úrræði vantaði. Árlegur kostnaður var nærri efri mörkum upphaflegs mats þótt um fjórfalt færri börn nytu samþættrar þjónustu en ráðgert hafði verið.
Að mati Ríkisendurskoðunar tryggðu lögin ekki aukna þjónustu, styttri bið eða fleiri úrræði. Árangursmælikvarða og reglulegt árangursmat vantaði. Börn með flóknasta vandann voru látin sitja eftir í innleiðingunni. Það er erfitt að hugsa sér alvarlegri athugasemd við kerfi sem var kynnt í nafni farsældar barna.
Auðvitað vissu allir innan síðustu ríkisstjórnar og Framsóknar að þetta væri staðan. Að árangur farsældarlaganna væri bara til í kosningaslögurum gamla bændaflokksins. Samt ákvað Ásmundur Einar að þykjast opna meðferðarheimilið Blönduhlíð fjórum dögum fyrir síðustu kosningar með viðhöfn. Áferðin var að Ási barnanna væri að skila sínu.

Frá þykjustu-opnun Blönduhlíðar nokkrum dögum fyrir síðustu kosningar. Mynd: Stjórnarráðið
En Framsókn fékk opnunarmyndina sem flokkurinn vildi. Það var markmiðið. Börnin gátu alveg beðið.
Loksins er verið að laga Ísland
Það kom í hlut sitjandi ríkisstjórnar að laga Ísland eftir aðgerðarleysi, værukærð og ábyrgðarskort síðustu ríkisstjórnar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna.
Á húsnæðismarkaði hefur ríkisstjórnin kynnt aðgerðir til að styrkja óhagnaðardrifið húsnæði og breikka aðgengi að hlutdeildarlánum. Skattaafsláttur af leigutekjum hefur verið minnkaður. Frítekjumark ellilífeyris hefur verið hækkað og réttur til aldursviðbótar örorkulífeyris tryggður áfram eftir að fólk kemst á ellilífeyri. Þar hafa því verið gerðar áþreifanlegar breytingar á skattlagningu og framfærslu.
Í samgöngum hefur fyrsta samgönguáætlunin í sex ár verið samþykkt, með auknum framlögum til vegaviðhalds, vetrarþjónustu og áætlun um ný jarðgöng. Innviðafélag um risaframkvæmdir í þeim málaflokki var stofnað og komið á fleygiferð. Á orkusviðinu hefur Alþingi samþykkt einfaldari leyfisveitingar og breytingar á rammaáætlun til að hraða nauðsynlegri orkuöflun.
Fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands var samþykkt til tíu ára. Henni fylgja 35 aðgerðir fyrir árin 2026 og 2027, með áherslu á framleiðni, útflutning og verðmætari störf.
Í heilbrigðismálum hafa 244 ný rými fyrir aldraða verið opnuð á tólf mánuðum, bæði hjúkrunarrými og tímabundin úrræði. Sú fjölgun hefur létt á fráflæðisvanda Landspítala og skapað betri forsendur fyrir þjónustu við aðra sjúklinga.
Loks hefur veiðigjaldakerfinu verið breytt þannig að gjaldstofninn endurspegli betur raunverulegt aflaverðmæti og arður almennings af fiskauðlindinni aukist. Breytingin eykur hlut þjóðarinnar í verðmætunum sem verða til við nýtingu sameiginlegrar auðlindar hennar.
Spá stýrivaxtalækkun í febrúar
Í málefnum barna hefur verið ráðist í að byggja upp úrræðin sem farsældinni var ætlað að tengja saman. Lækjarbakki er kominn í rekstur og í maí var bið eftir plássi á meðferðarheimilum ríkisins fyrir börn og ungmenni í vímuefnavanda horfin. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru boðaðir 8,8 milljarðar króna í ný og aukin verkefni fyrir börn og fjölskyldur. Þar á meðal eru 1,4 milljarðar króna til Barna- og fjölskyldustofu og barna í viðkvæmri stöðu, 800 milljónir króna í þjónustu við börn með fjölþættan vanda og 350 milljónir króna til að stytta biðlista hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð.
Samhliða hefur ríkisstjórnin ráðist í tiltekt í ríkisrekstrinum, aukið aðhald, endurskoðað forgangsröðun og styrkt tekjustofna. Eftir áætlaðan 866 milljarða króna uppsafnaðan halla áranna 2019–2026 gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir að ríkissjóður verði hallalaus á næsta ári. Það yrði í fyrsta sinn frá 2018 sem tekjur ríkissjóðs standa undir útgjöldunum.
Á sama tíma er skapað svigrúm fyrir ný og aukin verkefni, meðal annars í þjónustu við börn, heilbrigðismálum og málefnum aldraðra. Þar birtist sú forgangsröðun að koma böndum á ríkisreksturinn og fjármagna nauðsynlega velferðarþjónustu til framtíðar.
Ábyrg stjórnmál og verkmikil ríkisstjórn munu líka skila fleiri krónum og aurum í vasa alls almennings. Nýlega birt hagspá Landsbankans sýnir að forsendur fyrir lækkun verðbólgu og vaxta hafa styrkst vegna aðgerða stjórnvalda og þeirrar þjóðarsáttar sem um framhald kjarasamninga. Minni eftirspurnarþrýstingur, lítið launaskrið og hóflegar gjaldskrárhækkanir eiga að draga úr verðbólgu á meðan aukið framboð íbúða og minni eftirspurn halda aftur af húsnæðisverði.
Bankinn telur vaxtahækkunarferlinu lokið og spáir því að vaxtalækkanir hefjist í febrúar 2027 og stýrivextir verði komnir í 6,5 prósent í árslok. Meðalverðbólga fari úr 5,5 prósentum í ár í 4,3 prósent á næsta ári og 3,4 prósent árið 2028. ASÍ telur að verðbólgan verði enn lægri, 4,0 prósent árið 2027 og komin niður í 3,4 prósent í lok árs 2027.
Sleggjan er því kyrfilega á lofti þótt það hafi þurft nokkur fleiri högg á hinn mikla vanda sem síðasta stjórn skildi eftir sig en vonast var til við stjórnarskiptin.
Hin kostulega reiknivél Framsóknar
Þá skulum við snúa okkur aftur að Framsókn. Það er ekki ofmælt að staða flokksins hefur ekki batnað eftir að hann datt úr stöðu til að skrifa endalausa gúmmítékka og forvígismenn hans létu mynda sig í sífellu við að klippa á borða á verkefnum sem voru fjarri því að vera tilbúin. Fylgi flokksins hefur ekki gert neitt annað en að dala það sem af er kjörtímabili og síðast í vor mældist það ekki nægjanlegt til að skila Framsókn þingmanni. Þingflokkurinn, sem telur fimm, virðist vera að minnsta kosti þríklofinn og nýr formaður flokksins, sem er fyrrverandi þingmaður og ráðherra sem var hafnað í síðustu kosningum, er nú starfsmaður þingflokksins.
Sífelldar tilraunir til að láta taka sig alvarlega á ný virðast drukkna samstundis í næstu sundlaug. Það á sérstaklega við á sviði efnahagsmála. Nýjasta útspil Framsóknar er ný reiknivél sem flokkurinn hefur látið gervigreind gera og birtist á síðunni utreikningur.is.
Tilgangur hennar er sagður að bjóða heimilum nákvæmar krónutölur um áhrif fjárlagafrumvarps næsta árs á þau. Þegar reiknireglurnar á bak við útreikninginn eru skoðaðar kemur hins vegar í ljós hversu mikið niðurstaðan veltur á snargölnum forsendum sem Framsókn hefur hannað til að komast að fyrir fram ákveðinni niðurstöðu, völdum neysluvenjum, áætluðum viðbrögðum banka og upplýsingum sem aldrei er spurt um.
Fara allir Íslendingar í baðlón fyrir 20 þúsund á ári?
Við skulum byrja á baðlónum, en til stendur að afnema skattaafslátt þeirra þannig að þau færist upp í efra virðisaukaskattsþrep. Nú skal benda á, þótt flestir viti það nú þegar, að langflestir gestir baðlóna eru erlendir ferðamenn, ekki íslensk vísitöluheimili. Framsókn og gervigreindin hennar úthluta hins vegar sex af hverjum sjö heimilum sem Framsókn reiknar kostnað fyrir 20 þúsund króna árlegri baðlónaneyslu til að barna fullyrðingar sínar um kostnað sem leggist á þau. Það heimili sem út af stendur á að baðlóna sin fyrir einungis 10 þúsund krónur á ári.
Næst skulum við færa okkur yfir í krónutölugjöldin, sem Framsókn reiknar með 5,2 prósenta hækkun þrátt fyrir að fyrir liggi yfirlýsing ríkisstjórnar um að þau muni einungis hækka um 2,5 prósent sem hluti af þjóðarsáttinni til að viðhalda kjarasamningum. Hækkunin sem Framsókn reiknar með er því rúmlega tvisvar sinnum sú sem mun raunverulega verða.
Eitt krónutölugjaldanna sem um ræðir er áfengisgjald, sem Framsóknarflokkurinn áætlar að leggist á alla fullorðna, eða tvo á heimili. Kannanir hafa sýnt að tæpur fjórðungur fullorðinna Íslendinga drekkur ekki neitt og ekki er óvarlegt að fullyrða að stór hluti hinna drekki stöku sinnum, á meðan að sumir drekki reglulega og þar af leiðandi miklu meira. Forsendur Framsóknarflokksins eru því þarna enn og aftur í tómu rugli. Flokkurinn er búinn að ákveða neysluvenjur fólks, í engu samræmi við veruleikann, til að skila niðurstöðunni sem hann vildi fá út þegar hann bað gervigreindina að búa til reiknivélina.
Framsókn gefur sér ýmislegt annað. Hún er til að mynda búin að ákveða að bankar landsins muni velta hækkun á bankaskatti á heimili landsins. Það gerir flokkurinn þrátt fyrir að formaður hans, Lilja D. Alfreðsdóttir, hafi sem ráðherra látið vinna skýrslu sem birt var fyrir rúmum tveimur árum og sýndi að sömu bankar hefðu stungið öllum ávinningi af lækkun sama skatts í vasann og ekki látið lántakendur njóta neins af honum. Í viðtölum eftir skýrslubirtinguna var Lilja skelegg og sagði að stjórnvöld þyrftu að grípa inn í ef bankarnir breyttu ekki til.
Þegar það á að hækka skattinn, og hagnaður bankanna hefur ekki gert neitt annað en að aukast svo mikið vegna verðbólgu og vaxta að þeir geta vel borið hverja krónu þeirrar hækkunar án þess að velta henni á heimili og fyrirtæki, þá tekur Framsókn undir sýn bankanna.
Fullkomlega marklausir útreikningar
Alvarlegast af öllu er þó útreikningur Framsóknar á húsnæðislánum, sem mynda uppistöðuna í ímynduðum viðbótarkostnaði heimila vegna fjárlagafrumvarpsins. Þar vantar til að mynda glugga til að setja inn lánstíma, ekki er spurt um afborgunarfyrirkomulag eða gildandi lánsvexti. Þar af leiðandi hefur reiknivélin engar upplýsingar til að reikna raunverulega greiðslubyrði heimilis og fyrir vikið eru allir útreikningar hennar fullkomlega marklausir.
Til að sýna fram á þetta skulum við skoða aðaldæmi Framsóknar, sem heldur því fram að 92.138 krónur muni bætast við höfuðstól húsnæðisláns á ári. Þessi tala segir ekkert um þá mánaðargreiðslu sem bankinn mun innheimta. Ef við gefum okkur að þessi tala sé rétt, sem hún er auðvitað almennt ekki, þá myndi hún þýða að sá sem er með jafngreiðslulán á fjögurra prósenta verðtryggðum vöxtum myndi borga 1.697 krónur í viðbót á mánuði ef fimm ár eru eftir af láninu hans en sá sem væri með sama lán til 40 ára myndi greiða 385 krónur á mánuði. Lánstíminn breytir nefnilega öllu um dreifingu greiðslna og án hans er ekkert hægt að reikna út greiðslubyrði.
Ef eitthvað slagar upp í að vera jafn grillað og þetta í framsetningu Framsóknar þá er það ímynduð fimm mánaða töf verði á því að vextir fari að lækka, og þá um einungis 0,25 prósent. Þetta er ekkert annað en hugarburður Framsóknar og byggir á engu. Hér má benda á hagspá Landsbankans sem var fjallað um hér að ofan en því er spáð að vaxtalækkunarferlið hefjist strax í febrúar á næsta ári.
Fleira má tína til. Líkanið gerir ráð fyrir fjögurra prósenta viðbótarséreign hjá öllum þegar fyrirliggjandi er að fjöldi Íslendinga er einfaldlega ekki að safna í séreignarsjóði. Vaxtabætur eru reiknaðar út frá hámarksviðmiðum án upplýsinga um greidd vaxtagjöld og án þess að taka tillit til þess að eignir utan íbúðar og fjármagnstekjur geti líka breytt bótunum. Þessar reglur skipta máli þegar tiltekin upphæð er kynnt sem missir heimilis.
Framkvæmdakostnaður er svo einfaldlega margfaldaður með einu prósenti án þess að taka tillit til þess að taka tillit til aragrúa breytna sem geta haft áhrif á endurgreiðslu vegna hans.
Að endingu vantar svo auðvitað alltaf, líkt og hjá hinum flokkunum í stjórnarandstöðunni, að segja til um hvernig ríkissjóður eigi að ná endum saman og hætta að reka sig á yfirdrætti ef tekjur hans eru ekki auknar samhliða hagræðingu. Þar skilar Framsókn auðu eins og í öðru.
Og eftir stendur, þegar búið er að afrugla alla þessa þvælu sem boðið er upp á hér að ofan, hvort það sé ekki einfaldlega best að sleppa Framsókn.





